Wednesday, 27 July 2011

Flutningar.

Nú er allt á fullu í flutningum hjá okkur. Fengum flutningafyrirtæki til að pakka öllum húsgögnunum okkar og svo að raða í gáminn. Þeir eru að raða í gámin akkurat núna. Erum reyndar í smá sjokki yfir hvað þetta er dýrt en held bara að það sé fullkomlega þess virði vegna andlegu hliðarinnar.

Mamma og pabbi voru hjá okkur núna í júlí og eru farin heim til Íslands með börnin. Það gekk allt vel og börnin skemmta sér vel með ömmu og afa og svo auðvitað að leika við Írisi og Finn Gauta og Rakel líka búin að leika við Tinnu og hitta Ágúst afa. Svo er stefnan tekin hjá þeim að fara í Kjósina um verslunarmannahelgina.

Nú eru bara síðustu dagarnir okkar Helga hérna í Lundi og það er nú nokkuð skrýtið. En við leigjum út húsið okkar hér þannig að við eigum nú eftir að koma aftur, líklega oftar en einu sinni.

Nú ætlum við bara að njóta þess að vera til og fara út að borða og heimsækja vini áður en við flytjum.


Wednesday, 29 June 2011

11 ára.

Litli Arnar Ingi er orðinn 11 ára og ég bara trúi því ekki. Hann átti afmæli 27.júní og við vöktum hann með afmælissöng og gjöfum. Mjög ánægður drengur. Svo var auðvitað bökuð súkkulaðikaka og sungið fyrir hann aftur. Grilluðum um kvöldið og borðuðum úti í góða veðrinu. Við vorum búin að halda uppá afmælið hans fyrir bekkjarfélagana og svo buðum við besta vini hans á McDonalds og í bíó. Mamma og pabbi koma svo 12.júlí og þá verður aftur afmæliskaka fyrir drenginn!

Ég fór með krakkana á ströndina í gær í steikjandi hita og sól. Þetta var reyndar fyrsta strandarferðin okkar í sumar. Helgi komst ekki með þar sem hann er enn í vinnunni. En hann fer í sumarfrí í júlí og þá gerum við eitthvað. Svo er auðvitað að nota fríið í að pakka fyrir flutningana til Íslands.

Friday, 24 June 2011

Middsommar.

Núna er middsommar helgin í Svíþjóð og hún er nánast eins og verslunarmannahelgin á Íslandi. "Allir" gera eitthvað og það eru skemmtanir, grill og gaman. Við hittumst matarklúbburinn, börn og gestir í Löddesnäs í Bjärred þar sem er opið svæði með grilli og ströndin rétt hjá. Við grilluðum pylsur og svo voru börnin að grilla sykurpúða og fórum í hlaupið í skarðið og spjölluðum. Mjög skemmtilegur dagur.

Man ekki hvort ég sé búin að segja frá því en við hjónin vorum að kaupa okkur notað hjólhýsi. Erum að flytja til Íslands og getum ekki hugsað okkur að vera án "ferðavagns" því að okkur þykir gaman að fara í tjaldstæði og líka með vinum og vandamönnum. Svo getum við alltaf farið með hjólhýsið og plantað því hjá mömmu og pabba í sumarbústaðnum í smá stund, eða hjá sumarbústaðnum hjá Villa og Huldu. Svo hefur verið árlegt lítið ættarmót hjá pabba hans Helga í Múlakoti í Fljótshlíð í sumarbústaðnum hans og þá væri gaman að fara með hjólhýsið þangað og gista. Nóg hægt að gera og það verður bara spennandi að fara í smá hjólhýsaferðalag.