Jæja, komin tími á smá blogg hérna.
Við fjölskyldan erum komin heim í Lund aftur og það er búið að vera hátt í 30°C hiti, algjörlega ólíft. Ekki gott! En núna er "bara" 20°C hiti og það er nokkuð gott, svo er smá vindur líka. Við verðum algjörlega óvirk þegar það er svona heitt, nennum ekki neinu.
Við fórum í fermingu hjá Þorra, þeirra Adda og Helgu á laugardaginn. Hann fermdist hérna í Lundi og fermingin hérna er með öðru sniði en á Íslandi. Mikið fjör, hálfgert leikrit og allir fermingarkrakkar í kufli og berfættir. Alveg frábært! Veislan hjá Adda og Helgu var mjög skemmtileg. Það var grillað íslensk lambakjöt og gott meðlæti og setið úti og borðað. Flott veisla og skemmtileg.
En þá aftur að New York ferðinni okkar. Við fórum í siglingu að frelsisstyttunni og það var mjög gaman að sjá þessa frægu styttu svona nálægt og svo öll háhýsin í NY úr bátnum. Svo gengum við að "ground zero" þar sem tvíburaturnarnir voru og skoðuðum eitthvað minningasafn um það og árásirnar. Við vorum svo heilmikið í túristastrætó og keyrðum þar um Harlem, Brooklyn og um öll helstu stræti NY. Við fórum í Magnolia bakery og keyptum þar cupcakes og ostaköku og fórum í Central Park og borðuðum og kíktum á mannlífið. Mjög skemmtilegt. Á miðvikudeginum fórum við svo með lest til Auðar og Péturs á Long Island. Við Auður fórum aðeins í Kohl's og Target en ég fann ekki það sem ég var að leita að. Svo var Sæunn, dóttir Auðar og Péturs að fara á "Prom night" í skólanum og það var verið í hárgreiðslu, förðun og allt það sem fylgir að fara á svona galakvöld. Það var rosaflottur síðkjóll og bara eins og þegar fegurðardrottningarnar taka þátt í fegurðarsamkeppni. Sæunn var mjög flott og sæt. Svo fórum við með Auði þar sem var verið að taka myndir af öllum pörunum heima hjá einni vinkonunni. En hún bjó í hálfgerðri höll (svona Dallas tilfinning) sem var byggð af mafíósa í gamla daga. Risastórt hús á risastórri landareign. Svo var annað stórt einbýlishús sem sér sundlaug þar sem þjónustufólkið bjó í gamla daga en "amman" bjó í núna. Einnig var verið að byggja annað stórt einbýlishús á landareigninni. Og þessi hús öll eru ekkert nálægt hvort öðru. Ótrúlega gaman að sjá þetta allt saman. Á leiðinni til baka þá fórum við í matvörubúð og það var keypt inn fyrir kvöldið. Svo var grillaðar frábærar nautalaundir, grænmeti og sósa....nammi, namm! Við sátum úti í garði og borðuðum og höfðum það gott. Nema að Helgi fékk nokkur moskító bit á kálfana.
Við komum svo til Íslands aftur aðfaranótt föstudagsins. Krakkarnir voru svo spennt að sjá dótið sem við höfðum keypt að þau voru mætt um hádegið til okkar. Og það var mjög gaman að hitta þau aftur og ég held bara að mamma og pabbi hafi líka verið ánægð að þau kæmu til okkar aftur :-)
Við höfðum nóg að gera þessa viku sem við vorum á Íslandi. Arnar Ingi átti afmæli og við héldum uppá það. Svo vorum við að setja saman hillur í geymsluna og taka til í bílskúrnum svo að bíllinn okkar kæmist þar inn....og þetta tókst! Ég þreif svo alla glugga að utan, reyna að ná síðustu leyfunum af öskunni burt þó svo að mamma og pabbi hafi reynt að sprauta af öllum gluggum. Svo var bíllinn þrifinn og bónaður, grasið slegið og rakað, arfi tíndur og nýju tréræflarnir okkar vökvaðir. Við kíktum uppí Kjós í sumarbústaðinn til mömmu og pabba. Kíktum í Bjarmó til tengdó, fórum í mat til Inga og Þóru, ég hitti Guðrúnu og Írisi á Friday's og fór með Ingu og Bryndísi í heimsókn til Þórdísar. Það var sem sagt nóg að gera og við náðum ekki að hitta alla sem við hefðum viljað. En það kemur bara að því seinna....við erum með á planinu okkar að flytja til Íslands næsta sumar þannig að þá verður nægur tími að hitta alla.
Næst á dagskrá hjá okkur er að fara til Stokkhólms í næstu viku og við erum með íbúð þar frá 16-21.júlí. Við ætlum nú að gista einhvers staðar á leiðinni og skoða okkur aðeins um. En erum ekki alveg búin að plana hvert við förum eða hvar við gistum.