Thursday, 21 April 2011

Ennþá París.

Við fórum í Disneyland í gær og byrjuðum á því að taka lest þangað. Lestarstöðin fyrir utan hótelið okkar og bara bein leið.

Veðrið var frábært eins og það er búið að vera alla ferðina. Fullt af fólki í Disneylandi en ég hélt að við myndum ekki vera á mesta ferðamannatímanum, ef það er ekki, hvernig er þá á sumrin? Fínn garður en það er sko hægt að setja út á það hvað langar raðir er í alla afþreyingu. Það var tímamælir þar sem sagt var hver biðin væri. Oftast var það um klukkutími og það mesta sem við sáum var 90 mínútur í eitthvað asnalegt tæki. Það var sem sagt þannig að við fórum nú ekki í mikið af tækjum en vi ð sáum eina frábæra sýningu. Það var verið að sýna hvernig áhættu atriði í bíómyndum eru gerð þ.e eltingaleikir á bílum og mótorhjólum. Alveg ótrúlega flott og þvílíkt hæfileikaríkir bílstjórar. Auðvitað eru allir bílarnir sér útbúnir og það var einnig sýnt hvernig allt er gert. Þetta fannst mér standa uppúr heimsókninni í Disney.

Við fórum og löbbuðum Champs-Élysées í dag að Sigurboganum og sáum líka þetta fræga hringtorg, ef hægt er að kalla þetta hringtorg. Það voru bara bílar útum allt að troðast og flauta og alveg ótrúlegt að fylgjast með.

Krakkarnir fóru svo í leiktækjasalinn á hótelinu og í sundlaugina. Eftir það röltum við nálægar götur í kringum hótelið og fengum okkur kvöldmat. Og svo er það bara heimferð á morgun.


Tuesday, 19 April 2011

París.

Fjölskyldan komin til Parísar og erum búin að fá alveg æðislegt veður og veðurspáin góð allan tímann, sól og blíða.

Í gær löbbuðum við að Notre Dame kirkjunni og fórum svo í siglingu á Signu. Fórum úr bátnum við Eiffel turninn en nenntum sko ekki að bíða í röð þar, mörg hundruð metra röð! En við röltum um þarna og tókum myndir. Svo var auðvitað stoppað og borðað og haft það gott. Svo fórum við í sundlaugina á hótelinu en það er sko hægt að setja út á það að búningsklefinn var pínulítill og svo smá sturta inni á klósettinu. Við fórum sko bara í sturtu á hótelherberginu. Enda virtist enginn fara í sturtu fyrir sundið hérna. Við vorum nú frekar þreytt eftir þetta allt saman þannig að við Helgi fórum og keyptum samlokur og svo horfðu krakkarnir á bíómynd á hótelinu sem við leigðum, heitir "Dumma mej" á sænsku, kannski "Aulinn ég" á íslensku.

Í dag erum við búin að fara hállfa leið upp Eiffel turninn því að þegar við vorum komin í miðjuna þá var hætt að selja miða upp á efstu hæðina. Við komum korteri áður en það opnaði og þvílík röð. En við létum okkur hafa það og biðum í röð í tæpa tvo tíma. Alveg svakalega flott útsýni úr turninum og ekki skemmdi veðrið fyrir. Það er búið að vera 25°C í dag. VIð tókum svo bát og sigldum um Signu og fórum af hjá Louvre safninu en það var reyndar lokað á þriðjudögum svo við kannski reynum aftur ef við höfum tíma. Á morgun er stefnan tekin á Disney World með krakkana.

Wednesday, 13 April 2011

Myndir af húsinu



Hérna eru tvær af myndunum frá ljósmyndaranum. Þessi fíni blái himinn kominn þrátt fyrir að myndirnar voru teknar þegar það var skýjað.

París.

Nú styttist heldur betur í Parísarferðina okkar. Við förum á sunnudaginn og verðum fram á föstudag. Við ætlum að kíkja í Disney land, Louvre safnið, Eiffel turninn, Notre Dame kirkjuna og svo bara dúlla okkur í bænum og borða bakkelsi! Vona bara að veðrið verði fínt.

Við eigum sko eftir að sakna þess að fá ekki páskaegg þessa páskana. Það er enginn að koma í heimsókn fyrir páska en mamma kemur 3.maí en það er nú ekki sama stemmning ef við fáum páskaegg þá. Við höfum alltaf haft það þannig á páskadags morgunn að fela páskaeggin og svo er hafin leit að þeim um húsið. En við ætlum að borða Ali svínahamborgarhrygg á páskadag þannig að það verður eitthvað íslenskt.


Sunday, 10 April 2011

Sumarblíða.

Það er búið að vera frábært veður hérna um helgina. Sól og blár himinn og hitinn fór í alla vega 17°C. Krakkarnir eru búnir að leika sér með vatnsblöðrur og í smá vatnsslag. Rakel fór svo með Carolinu vinkonu sinni og mömmu hennar í skógarferð með nesti og nýja skó. Þar var leikið og klifrað og haft gaman. Svo er bara kominn tími á að grilla í góða veðrinu. Best að njóta dagsins og morgundagsins því á þriðjudag á að koma rok og rigning.

Monday, 4 April 2011

Selja, selja.

Við hittum fasteignasala á föstudaginn og skrifuðum undir samning um að setja húsið okkar í Lundi á sölu. Það kemur svo ljósmyndari á föstudaginn og tekur myndir og allt ferlið er bara farið í gang. Svo er stefnan tekin á að auglýsa fyrir páska og opið hús þann 28. apríl sem fasteignasalinn sér alveg um.

Þetta er svolítið öðruvísi söluferli hérna heldur en á Íslandi. Þegar ljósmyndarinn kemur þá þarf helst að vera búið að fjarlægja allt af borðum, hillum, persónulegum myndum og taka heilmikið til. Jafnvel færa til húsgögn og bara heilmikil vinna. Það eru bara míni flutningar að fá ljósmyndara heim og svo einnig þegar sýningin á húsinu er. Svo er auðvitað mest af þessum hlutum sem við erum að nota og þá þarf að setja það aftur upp. En ég verð nú að segja að yfirleitt eru myndirnar og auglýsingarnar á netinu mjög flottar hérna. Maður sér nú mjög oft á myndum frá fasteignasölum á Íslandi að það er drasl útum allt, klósettsetan uppi, alls konar drasl og jafnvel matur á borði og fólk inn á myndunum. Það finnst manni ekki vera mjög faglegt.

Hægt er að kaupa tryggingu fyrir "leyndum göllum" og þá kemur fyrirtæki og skoðar allt húsið hátt og lágt og metur hvað gæti farið og allt svoleiðis. Seljandi er nefnilega ábyrgur í 10 ár fyrir leyndum göllum hér í Svíþjóð. Þessi trygging er frekar dýr en við viljum vera alveg frí undan einhverju veseni þegar við erum flutt til Íslands....10 ár! bara bull! Svo er alltaf verðlagt hérna sem "byrjunarverð". Yfirleitt er yfirboðið í húsin þ.e ef það er ekkert ruglverð og margir sem hafa áhuga á húsinu. En það hentar okkur bara mjög vel....fáum vonandi meira en uppsett verð.