Tuesday, 10 June 2008

Þriðjudagur

Þá er Helgi kominn heim frá Washington DC og það er enginn Ameríkuferð á planinu á næstunni ;)
En það er utanlandsferð í kortunum en við ætlum að keyra til Danmerkur í Legoland....það telst nú utanlandsferð þó svo að við förum á okkar bíl....við keyrum yfir í annað land :)

Fór í golfkennslutíma númer 2 í morgun og svo kíktum við mamma aðeins í búðir og svo í smá göngutúr.

Annars ekkert merkilegt að gerast, heitt og gott úti en þó nokkuð rok núna, nánast skýjað í allan dag og ég var bara mjög ánægð með það, alla vega í bili.

Kveðja á klakann.

2 comments:

  1. Er mín að verða dáldið góð í golfi??:)
    kv.Ásdís

    ReplyDelete
  2. Ásdís, ég get nú ekki sagt að það sjáist neinir golfhæfileikar hjá mér...en vonandi gerist eitthvað ef ég verð dugleg að æfa. Elsa

    ReplyDelete

Veljið hér að neðan "Name/URL" þar sem þið getið sett inn nafnið ykkar en ekki þarf að fylla inn í URL.