Monday, 26 October 2009

Mánuður eftir

Jæja, nú er rúmlega mánuður eftir af vinnutörninni hans Helga í þetta sinn alla vega. Hann er eftir að vinna í Englandi í 5 vikur og það er nú svolítið síðan ég byrjaði að telja niður. Það er frekar einmanalegt að vera í útlöndum án fjölskyldu og vina og eiginmaðurinn að vinna í "öðru útlandi". Auðvitað er maður ekki vinalaus hérna en það er öðruvísi þegar maður er með nýjum vinum, ekki æskufélögum og bestu vinum sínum. Og auðvitað fjölskyldan, foreldrar og systkini.
Ég er nú samt búin að vera svo heppin að bæði hefur Katrín kíkt í heimsókn í viku og einnig Anna María í viku. Og auðvitað mamma og pabbi í rúmlega tvær vikur og svo koma þau aftur í heimsókn til okkar eftir þrjár vikur.....þann 17.nóvember...jíbbííí!!

Ég var að fá tíma í röntgen myndatökuna vegna hnjána á mér, ég fer 17.nóvember og get þá strax farið að nota mömmu og pabba í það að passa því ég á ekki tíma fyrr en klukkan hálf fjögur og þá eru krakkarnir komnir heim úr skólanum. Ég er ennþá á bólgueyðandi og verkjastillandi lyfjunum og mér líður mun betur. Ég geri nú heldur ekkert sem reynir á hnéin og finn það ef ég þarf að ganga í nokkrar mínútur þá reynir á helv.... hnéin. En vonandi er þetta bara allt að lagast og svo kemur kannski eitthvað í ljós í röntgen myndatökunni.

Rakel fer svo til bæklunarlæknis vegna fótanna á sér þann 24.nóvember. Það er komin tími á ný innlegg í skóna hjá henni og þá þarf hún að hitta bæklunarlækni. Við fengum síðast innlegg á Íslandi og þau eru orðin of lítil núna.

Og fyrst ég er nú að tala um lækna þá á ég tíma hjá tannlækni 10.nóvember í árlega skoðun og Helgi fer í desember til tannlæknis í sína árlegu skoðun.

Ég átti fína afmælishelgi núna. Átti afmæli í gær (25.október) og Helgi eldaði frábært nautafille á laugardagskvöldið og svo vorum við með smá kaffi og kökur í gær og buðum Möggu og Birni Inga. Afgangurinn af matarklúbbnum (Addi, Helga, Sigga og Siggi) eru á Íslandi því að það er vetrarfrí alla þessa viku í skólunum.
En takk þið sem senduð mér afmæliskveðjur!

Friday, 16 October 2009

Hné

Jæja, þá er ég búin að fara til læknis út af hnénu á mér eftir mánuð af verkjum. Er komin á verkjastillandi og bólgueyðandi töflur og svo á ég að fara í röntgen fljótlega. Hér í Svíþjóð virkar það þannig að læknirinn sendir beiðni og svo fæ ég tíma í röntgen í pósti. Þannig að ég veit ekki alveg hvenær ég fer í röntgen. Læknirinn vill líka að ég byrji í sjúkraþjálfun en ég ætla nú að bíða með að rjúka í sjúkraþjálfun þangað til það er komin niðurstaða úr röntgenmyndatökunni. Veit nú ekki af hverju þetta byrjaði en ég get nú hvorki hjólað né farið í göngutúra. Geri bara það sem nauðsyn krefur og þá er mér bara minna illt. Ætla nú samt að fara að byrja aftur í ræktinni en þá verð ég bara að sleppa upphitun á brettinu og gera bara æfingar fyrir efri hluta líkamans. Sjáum hvernig það gengur.
Helgi á leiðinni heim í kvöld...hlakka til að hitta hann. Skautar hjá Arnari Inga á morgun, dans hjá Rakel á sunnudaginn og svo fer Rakel líka í afmæli til Önnu vinkonu sinnar.

Góða helgi!

Monday, 12 October 2009


Og svona var veðrið í Lundi meðan það snjóaði á Íslandi.

Börnin í vettvangsferð með Helga.

Rakel 7 ára, voðalega fullorðinsleg!

Snjórinn í byrjun október á Íslandi.






Nýir álgluggar í húsið. Borðstofan.

Bílskúrsgluggarnir.

Og svo stækkun á eldhúsinu áður en gluggarnir og rennihurðin komu í. Svefnherbergis svalahurð við hliðina á.

Og volla....gluggarnir og rennihurðin (í miðjunni) komin í.

Íslandsferðin búin

Þá er ég komin aftur heim í Lund. Ótrúlegt hvað tíminn leið hratt á Íslandi enda alveg feikinóg að gera.
Náði samt að hitta nokkrar vinkonur. Hitti Helgu Ævars, og svo fórum við Guðrún á Ruby Tuesday að borða og það er bara orðin fastur liður hjá okkur að hittast þar þegar ég kem til Íslands. Fór að heimsækja Önnu Maríu, Katrínu og hitti svo saumaklúbbinn hjá Sigrúnu Davíðs. Síðan var auðvitað matarveisla hjá mömmu og pabba og fjölskylduhittingur. Ég heimsótti afa gamla og einnig tengdapabba. Og svo við tölum nú ekki um alla iðnaðarmennina sem hitti vegna endurbótanna á Lálandinu.
Ég reddaði ýmsu í sambandi við endurbæturnar og nú er bara allt að gerast og vonandi að koma einhver mynd á þetta fljótlega.

Og auðvitað þegar maður er á Íslandi fær maður allar tegundir af veðri. Lenti í snjókomu og kulda og svo kom brjálaður stormur!

Flugið frá Íslandi gekk eins og í sögu og það var þessi fíni meðvindur og ég komst á leiðarenda á góðum tíma.

Helgi er farin aftur til Swindon að vinna og ég sé hann á föstudagskvöldið. Hann er nú ekki til í það að vera heimavinnandi húsfaðir!

Thursday, 1 October 2009

Tíminn líður hratt....

....þegar það er gaman!
Anna María var að fara í dag aftur til Íslands. Við erum búnar að vera saman í viku og hafa það rosalega fínt og tala mikið! Við erum búnar að vera á heilmiklu búðarrölti og Anna María búin að kaupa heilmikið af nýtilegum hlutum.
Við fórum saman í ræktina, fórum í göngutúra og höfðum það svakalega gott. Anna María kenndi krökkunum að prjóna því að ekki hef ég þann hæfileika að kunna það. Þau voru rosalega ánægð og eru nú með orm sem var prjónaður.

Helgi kemur líka frá Englandi í kvöld og við höfum þá morgundaginn til að hittast og tala saman áður en ég kem svo til Íslands á laugardaginn. Ég sé að ég hef alveg nóg að gera í sambandi við húsamálin okkar en vonandi verður líka góður tími í að gera eitthvað skemmtilegt.

Sjáumst!