Íslandsferðin varð aðeins lengri hjá mér og krökkunum en áætlað var. Við fórum á sunnudegi út á flugvöll ásamt Helga. Hann ætlaði til London og við til Kaupmannahafnar. Vélin hans Helga fór í loftið en við sátum eftir og á skjánum stóð að athuga ætti flugið eftir klukkutíma. Sá klukkutími leið og önnur athugasemd birtist að athuga ætti flugið eftir klukkutíma. Ég fór og spjallaði aðeins við starfsfólkið þarna og í ljós kom að flugvélin var biluð. Það var ekkert hægt að segja hvenær vélin færi og fljótlega koma að athuga ætti 4 tímum seinna. Ég ákvað að fara bara heim aftur og fljúga seinna því að það var spáð einhverju brjáluðu veðri sem ætti að skella yfir Danmörku um kvöldið. Ég nennti nú ekki að vera föst á Kastrup og komast ekki heim í Lund eftir langa bið á Íslandi.
Reyndar vandaðist aðeins málið því að það var ekki flogið á þriðjudegi svo að við bókuðum okkur í annað flug á miðvikudagsmorgni kl. 7. Mér fannst frekar óþægilegt að þurfa að biðja um þriggja daga aukafrí fyrir krakkana í skólanum því að þau voru búin að fá auka sex daga frí og svo vetrarfríið sitt eða með þessu auka fríi nánast þrjár vikur. Svo sá ég að vélin komst í lag á miðnætti þannig að fólk var að komast um miðja nótt til Kaupmannahafnar. Ég var nú fegin að hafa ekki beðið með krakkana í 10 tíma úti á velli og þurft svo að dröslast með þau um miðja nótt heim í Lund, ég held meiri að segja að það gangi ekki lestir nema til Malmö um miðja nótt.
Heimferðin á miðvikudaginn gekk svo eins og í sögu og krakkarnir mættu í skólann á fimmtudaginn.
Annars gengu afmælin hans Helga alveg stórvel. Ég náði að koma honum verulega á óvart með afmælisgjöf frá mér og pabba hans. Helga var búið að dreyma um ákveðna myndavél lengi en sú vél er mjög dýr. Ég náði að versla vélina hjá Nýherja út á starfsmannaafsláttinn hans Helga og svo tók ég tax free og þá varð verðið mun skárra (en dýrt samt). Pabbi hans Helga tók svo þátt í þessu og Helga grunaði ekki neitt því að ég var búin að gefa honum afmælisgjöf á afmælisdaginn sinn. Ég pakkaði inn myndavélinni og setti svo þann pakka í kassa utan af potti. Þeim kassa pakkaði ég svo inn og setti í gjafapoka. Það tók smá tíma að taka utan af þessu og Helgi hélt fyrst að hann væri að fá pott í afmælisgjöf því að við þurfum nýja potta á spanhelluborðið okkar í Lálandi. Svo kom nú annar pakki í ljós en ekki grunaði Helga neitt ennþá. Og hann var MJÖG glaður þegar að myndavélin kom svo í ljós.
Helgi var nú að vinna alla vikuna sem hann var svo á Íslandi þannig að við gerðum nú ekki mikið saman. Krakkarnir voru mikið að leika við Írisi og Finn Gauta. Einnig fannst þeim gaman að vera hjá mömmu og pabba og fara í hesthúsið.
Við buðum svo Inga og Þóru í mat eitt kvöldið þar sem þau komust ekki í afmælið hans Helga. Einnig fórum við í mat til þeirra og svo fórum við í mat til Önnu Maríu og Árna eitt kvöldið.
Núna erum við sem sagt í Lundi og Helgi er líka komin heim og verður að vinna að heiman í næstu viku (fyrir utan að skreppa einn dag til Stokkhólms). Við erum að fara að hitta skólastjóra í tveimur skólum sem við erum að athuga með fyrir Arnar Inga fyrir næsta haust. Skólinn sem hann er í núna (frábær skóli) er bara með krakka upp að 10 ára aldri. Skólinn í hverfinu sem hann ætti að fara í næsta haust er alveg ömurlegur skóli þannig að við getum ekki hugsað okkur að setja Arnar Inga í þann skóla. Næsti vetur verður sem sagt, keyra og sækja vetur þar sem hinir skólarnir eru ekki í göngufæri. En vonandi líst okkur á annan skólann sem við skoðum, þeir eru báðir litlir skólar og það er það sem Arnar Ingi þarf þar sem hann er með athyglisbrest og á erfitt með að einbeita sér og funkerar ekki alveg í of stórum hópi.
Myndir koma svo fljótlega frá Íslandsferðinni okkar.
Sunday, 7 March 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment