Jæja, ég komst heim til Lundar tveimur dögum eftir áætlaðan dag. Ég flaug til Gautaborgar og tók svo lest þaðan til Lundar. Það gekk allt mjög vel og ég fegin að hafa komist frá Íslandi. Var farin að sakna litlu fjölskyldunnar minnar frekar mikið því óvissan er verst. Að vita ekkert hvenær ég kæmist til baka var það versta. Ef ég hefði bara vitað að ég þyrfti að stoppa tveimur til þremur dögum lengur hefði það ekki skipt máli en maður vissi ekkert og var alltaf í startholunum ef það yrði flogið.
Ég hafði það mjög gott á Íslandi. Fór í fermingu til Evu Óskar, dóttur Dóru, fór í bíó, í matarklúbb, í nokkur matarboð og heimsóknir. Keypti gardínustangir í IKEA og pabbi setti þær upp í svefnherberginu svo ég gæti haft dimmt þar inni. Svo voru pantaðar screen gardínur frá Z-brautum til að hafa í stofunni. Þær komu svo upp rétt eftir að ég var farin og auðvitað var það pabbi sem reddaði málunum. Svo hitti ég garðyrkjumann sem setti núna í vikunni niður litlar hríslur fyrir okkur fyrir framan húsið, hinar voru allar dauðar og morknar, ógeðslega subbulegt að hafa það svona. Og auðvitað var það pabbi sem reddaði vatni fyrir garðyrkjumanninn og er svo búinn að fara að vökva eftir það.....hvað myndi ég gera ef ég ætti ekki svona frábærann pabba!!
Núna er mamma á leiðinni til mín, hún er í þessum skrifuðu orðum að bíða eftir að Helgi lendi frá Bretlandi og þau ætla svo að verða samferða í lestinni heim. En hvað það verður gaman hjá mér að fá þau bæði hingað.
Arnar Ingi er búinn að vera veikur í heila viku. Var fyrst með höfuðverk, kvef og hita. Svo varð hann betri en fékk svo aftur hita á þriðjudaginn og er stútfullur af ógeðslegu hori. Rakel var líka veik en er búin að fara í skólann síðustu tvo daga. Þannig að ég er búin að vera bundinn inni í heila viku. Arnar Ingi verður svo heima líka á morgun og vonandi nær hann að jafna sig um helgina.
En núna bíð ég spennt eftir Helga og mömmu.