Jæja, það kom að því að ég skrifi smá línu á bloggið. Er bara búin að gleyma þessu alveg.
En við vorum með gesti nýlega. Hulda og börnin þrjú komu til okkar og voru í 9 daga. Það var voða gaman. Við fórum auðvitað í nokkrar verslunarleiðangra og Ólöf Björk unglingurinn hafi gaman af því að versla og verslaði heilmikið. Auðvitað var líka verslað á hina fjölskyldumeðlimina og fjölskyldan fór heim til Íslands með alveg troðfullar töskur. Svo var farið í göngutúra, í Stadsparken og hjólað. Rakel fékk nýtt hjól og krakkarnir hjóluðu heilmikið, fórum í Sankt Hans backa að leika og skoða kanínurnar. Svo var keypt snú snú band og hoppað alveg fullt. Krakkarnir voru með harðsperrur í fótunum eftir það.
Við fengum íslensk páskaegg og þau voru borðuð á ógnarhraða...nammi, namm hvað þau voru góð.
Magga og Björn Ingi komu í heimsókn annan í páskum með Týru litlu sem er chicuacua hvolpur. Helgi og krakkarnir ætla að passa hana í nokkra daga í næstu viku þegar Magga og fjölskylda eru á Íslandi. Ég ætla sem sagt ekki að passa hana því að ég verð líka á Íslandi. Ég átti frímiða með IcelandExpress sem er að fara að renna út þannig að ég ákvað að skella mér til Íslands í fermingu og fer bara ein. Ætla að reyna að njóta þess að vera í smá húsmæðraorlofi.
Veðrið er bara allt að koma til hérna, sólin skín og 11°c hiti. Það kom nú einn sumardagur í síðustu viku þar sem var sól og 17°c hiti. Svo notalegt, nú bíður maður bara eftir fleiri svona dögum.
No comments:
Post a Comment