Thursday, 14 October 2010

Bloggleti

Er eitthvað frekar löt að blogga þessar vikurnar.  Enda ekkert merkilegt að gerast svo sem. 

Er reyndar að fara til Íslands á sunnudagskvöldið og hlakka mikið til.  Verð í eina viku og vikan er strax orðin frekar pökkuð í hittingi, matarboðum og skemmtilegheitum. 

Helgi er í Berlín þessa vikuna á SAP ráðstefnu og kemur á morgun. 

Arnar Ingi losnaði við gifsið í gær en er samt frekar aumur í hendinni, kemur í ljós þegar ég sæki hann í skólann hvernig fyrsti skóladagurinn án gifs gekk. Hann fór reyndar í píanókennslu í gær en spilaði ekki mikið með vinstri hendinni, kennarinn lét hann spila meira með hægri og kíkja á nótur, best að byrja rólega á þessu.

Ég var með Rakel í reiðskólanum í gær og var þar teymandi og hlaupandi með hestinn og Rakel, æfing fyrir mig líka :-)


1 comment:

Anonymous said...

Vona að þetta komi fljótlega hjá Arnar Inga og gott hjá Rakel að láta mömmu æfa líka. Bkv.frá liðinu á Bakkastöðumþ