Wednesday, 27 July 2011

Flutningar.

Nú er allt á fullu í flutningum hjá okkur. Fengum flutningafyrirtæki til að pakka öllum húsgögnunum okkar og svo að raða í gáminn. Þeir eru að raða í gámin akkurat núna. Erum reyndar í smá sjokki yfir hvað þetta er dýrt en held bara að það sé fullkomlega þess virði vegna andlegu hliðarinnar.

Mamma og pabbi voru hjá okkur núna í júlí og eru farin heim til Íslands með börnin. Það gekk allt vel og börnin skemmta sér vel með ömmu og afa og svo auðvitað að leika við Írisi og Finn Gauta og Rakel líka búin að leika við Tinnu og hitta Ágúst afa. Svo er stefnan tekin hjá þeim að fara í Kjósina um verslunarmannahelgina.

Nú eru bara síðustu dagarnir okkar Helga hérna í Lundi og það er nú nokkuð skrýtið. En við leigjum út húsið okkar hér þannig að við eigum nú eftir að koma aftur, líklega oftar en einu sinni.

Nú ætlum við bara að njóta þess að vera til og fara út að borða og heimsækja vini áður en við flytjum.


Wednesday, 29 June 2011

11 ára.

Litli Arnar Ingi er orðinn 11 ára og ég bara trúi því ekki. Hann átti afmæli 27.júní og við vöktum hann með afmælissöng og gjöfum. Mjög ánægður drengur. Svo var auðvitað bökuð súkkulaðikaka og sungið fyrir hann aftur. Grilluðum um kvöldið og borðuðum úti í góða veðrinu. Við vorum búin að halda uppá afmælið hans fyrir bekkjarfélagana og svo buðum við besta vini hans á McDonalds og í bíó. Mamma og pabbi koma svo 12.júlí og þá verður aftur afmæliskaka fyrir drenginn!

Ég fór með krakkana á ströndina í gær í steikjandi hita og sól. Þetta var reyndar fyrsta strandarferðin okkar í sumar. Helgi komst ekki með þar sem hann er enn í vinnunni. En hann fer í sumarfrí í júlí og þá gerum við eitthvað. Svo er auðvitað að nota fríið í að pakka fyrir flutningana til Íslands.

Friday, 24 June 2011

Middsommar.

Núna er middsommar helgin í Svíþjóð og hún er nánast eins og verslunarmannahelgin á Íslandi. "Allir" gera eitthvað og það eru skemmtanir, grill og gaman. Við hittumst matarklúbburinn, börn og gestir í Löddesnäs í Bjärred þar sem er opið svæði með grilli og ströndin rétt hjá. Við grilluðum pylsur og svo voru börnin að grilla sykurpúða og fórum í hlaupið í skarðið og spjölluðum. Mjög skemmtilegur dagur.

Man ekki hvort ég sé búin að segja frá því en við hjónin vorum að kaupa okkur notað hjólhýsi. Erum að flytja til Íslands og getum ekki hugsað okkur að vera án "ferðavagns" því að okkur þykir gaman að fara í tjaldstæði og líka með vinum og vandamönnum. Svo getum við alltaf farið með hjólhýsið og plantað því hjá mömmu og pabba í sumarbústaðnum í smá stund, eða hjá sumarbústaðnum hjá Villa og Huldu. Svo hefur verið árlegt lítið ættarmót hjá pabba hans Helga í Múlakoti í Fljótshlíð í sumarbústaðnum hans og þá væri gaman að fara með hjólhýsið þangað og gista. Nóg hægt að gera og það verður bara spennandi að fara í smá hjólhýsaferðalag.

Friday, 17 June 2011

Rólegheit.

Nú er bara rólegt í húsinu. Allir gestir farnir og manni bara hálfleiðist.

Við fórum öll til Malmö í gær. Gengum meðfram höfninni og skoðuðum Turning Torso. Fórum svo í miðbæinn og löbbuðum göngugötuna. Í dag skruppum svo Ingi og Þóra aðeins í Nova Lund verslunarferð og höfðu eitthvað uppúr krafsinu. Við erum búin að vera í stanslausu áti hérna. Eldum, bökum, drekkum, borðum osta og sætindi...úff...buxurnar þrengjast!

Nú er bara að bíða eftir næstu gestum sem koma samt ekki fyrr en í 12.júlí. Það verður gaman og það styttist heldur betur í flutninga. Þarf bráðum að byrja að pakka....mikið að gera þegar heilt hús er fullt af dóti.


Monday, 13 June 2011

Heimsókn.

Við erum með góða gesti frá Íslandi í heimsókn. Ingi, Þóra og börn kíktu á okkur og við erum búin að hafa það stór skemmtilegt saman. Krakkarnir ná vel saman og leika sér. Veðrið hefur verið fínt og við sátum heilan dag úti í garði og nutum sólarinnar og spjölluðum. Fylltum litlu sundlaugina fyrir börnin og þau skemmtu sér vel í að busla og hamast. Bökuðum vöfflur og borðuðum úti. Grilluðum svo um kvöldið og höfðum það gott.

Gærdagurinn var svo notaður í að skreppa pínustund í Nova Lund og versla aðeins í H&M, þ.e.a.s gestirnir, ekki ég! Svo fórum við í dýragarð Skånes Djurpark eftir hádegið í góðu veðri.

Ingi og co. fóru svo snemma af stað í Legoland og ætla vera þar í tvo daga og koma svo aftur til okkar. Það verður vonandi gott veður áfram og þá verður kannski farin ein ferð á ströndina.

Núna er bara tiltekt og þrif því að það eru tvær fjölskyldur að fara að skoða húsið okkar í dag. Við krossum putta og vonum að geta selt húsið í vikunni. Annars erum við komin með leigjanda ef að við fáum ekki ásættanlegt verð fyrir húsið. Kemur allt saman í ljós!

Sunday, 29 May 2011

Ullared.

Ég tók eina dagsferð í Ullared sem er mjög ódýr "stór" markaður eða hvað maður á að segja. Mjög vinsælt hjá svíunum að fara þangað að versla og á sumrin er alltaf troðið þarna og langar raðir alls staðar. Ég fór í sér rútuferð og svo var stoppað þarna í 6 klst. Alveg fullt hægt að skoða og ég keypti nú hitt og þetta og m.a heimilisvörur.

Við erum að fara að halda stráka bekkjarafmæli fyrir Arnar Inga í dag og ég keypti heilmikið fyrir það. Hann á nú ekki afmæli fyrr en 27.júní en þegar skólinn er búinn þá tvístrast alltaf bekkurinn og svo er Arnar Ingi að hætta í skólanum þannig að við ákváðum að halda bara upp á það núna. Þegar hann á svo afmæli þá bíður hann nokkrum öðrum vinum.


Monday, 23 May 2011

Við vorum með matarklúbb á laugardaginn. Helgi grillaði lambafile og það var mjög gott og mjög gaman. Þetta var síðasti matarklúbburinn okkar þar sem hann er með öllum meðlimum. Magga og Björn Ingi flytja til USA þann 3.júní, Helga og Addi flytja til Íslands 11.júlí og ég og Helgi flytjum 1.ágúst. Þetta er skrítið, bara Sigga og Siggi sem eru eftir í Svíþjóð. En við ætlum samt að reyna að ná einum matarklúbbi áður en við flytjum þó svo að sá matarklúbbur verði án Möggu og Björns Inga.

Nú þarf bara að fara að undirbúa aðeins flutningana. Ég talaði við Samskip í dag og er að bíða eftir tilboði í flutning frá þeim. Svo ætlum við að fá einhverja flutningsmenn að hjálpa til að raða í gáminn og pakka einhverju fyrir okkur, alla vega stóru hlutunum.

Við þurfum að skreppa til Kaupmannahafnar og fara í íslenska sendiráðið því að vegabréfið hans Arnars Inga er útrunnið. Það þarf að panta tíma og það er bara fyrir hádegi sem hægt er að mæta í vegabréfsmyndatöku. Við Helgi þurfum bæði að fylgja honum og sem betur fer er frí í skólanum þann 3.júní þannig að við erum búin að panta tíma og förum til Köben þá.

Ingi, Þóra og börn koma svo í heimsókn til okkar 10.júní og það verður gaman.

Sunday, 15 May 2011

Löt.

Ég er búin að vera frekar löt að skrifa hérna núna. Mamma var í heimsókn í 10 daga og það var æðislegt. Veðrið alveg frábært og við fórum mikið í göngutúra og sátum úti í garði og slökuðum á. Einnig skruppum við til Malmö og löbbuðum tvisvar í bæinn heiman frá mér. Við vorum svo sem ekkert spenntar fyrir búðarrápi því að þegar sumarið kemur þá er ekkert mikið sem heillar okkur. Mest allt lítið og stutt, hlírabolir og "sumarföt" fyrir heitt sumar. En það gerir ekkert til, við þurfum ekkert að eignast neitt meira!

Helgi farinn og kominn aftur frá Íslandi og það er búið að vera brjálað að gera hjá honum í vinnunni. Vinnur langt frameftir til að klára málin. Vona samt að þetta verði ekki svona alltaf eftir að við erum flutt heim. Ætlunin var að hann myndi fara að vinna týpíska "skrifstofuvinnu" frá 9-5 og vera meira með okkur. En það er nú jákvætt að hann hættir þessum utanlands ferðalögum á vegum vinnunnar.

Það styttist ótrúlega í að við flytjum vil Íslands. Bara 2 1/2 mánuður! Mamma og pabbi koma eftir 2 mánuði og taka svo börnin með til Íslands viku áður en við Helgi komum.

Monday, 2 May 2011

Heima.

Þá er Parísarferðin búin og páskarnir búnir. Einnig eru 2 sýningar á húsinu búnar og ég er þvílíkt fegin því. Það þarf að taka allt svo vel til og fjarlægja allt burt að það er svakaleg vinna að undirbúa sýningu. Svo kemur fasteignasalinn og sýnir húsið. Það þarf að bóka sig til að skoða húsið og það komu 9 bókanir á fyrstu sýningu og 7 á seinni sýningu sem þykir bara gott. Svo hringir fasteignasalinn í þá sem bókuðu sig í vikunni og eftir það kemur í ljós hvort að einhver býður í húsið.

Helgi er farinn til Íslands í vinnuferð í nýju vinnunni sinni til að fá tölvu, síma og hitta fólkið. Mamma kemur svo til mín á morgun og ég hlakka til. Gaman að fá hana og fara í göngutúra, þvælast í búðir og bara spjalla. Vona að hún hjálpi mér að komast út úr sætinda vítahringnum mínum. Ég er búin að vera alveg hrikaleg nánast allt þetta ár og get ekki hætt að borða nammi og sætabrauð alla daga. Enda sést það á viktinni : ( En mamma kemur með páskaegg á morgun og ætli maður narti ekki í það.....æææ.


Thursday, 21 April 2011

Ennþá París.

Við fórum í Disneyland í gær og byrjuðum á því að taka lest þangað. Lestarstöðin fyrir utan hótelið okkar og bara bein leið.

Veðrið var frábært eins og það er búið að vera alla ferðina. Fullt af fólki í Disneylandi en ég hélt að við myndum ekki vera á mesta ferðamannatímanum, ef það er ekki, hvernig er þá á sumrin? Fínn garður en það er sko hægt að setja út á það hvað langar raðir er í alla afþreyingu. Það var tímamælir þar sem sagt var hver biðin væri. Oftast var það um klukkutími og það mesta sem við sáum var 90 mínútur í eitthvað asnalegt tæki. Það var sem sagt þannig að við fórum nú ekki í mikið af tækjum en vi ð sáum eina frábæra sýningu. Það var verið að sýna hvernig áhættu atriði í bíómyndum eru gerð þ.e eltingaleikir á bílum og mótorhjólum. Alveg ótrúlega flott og þvílíkt hæfileikaríkir bílstjórar. Auðvitað eru allir bílarnir sér útbúnir og það var einnig sýnt hvernig allt er gert. Þetta fannst mér standa uppúr heimsókninni í Disney.

Við fórum og löbbuðum Champs-Élysées í dag að Sigurboganum og sáum líka þetta fræga hringtorg, ef hægt er að kalla þetta hringtorg. Það voru bara bílar útum allt að troðast og flauta og alveg ótrúlegt að fylgjast með.

Krakkarnir fóru svo í leiktækjasalinn á hótelinu og í sundlaugina. Eftir það röltum við nálægar götur í kringum hótelið og fengum okkur kvöldmat. Og svo er það bara heimferð á morgun.


Tuesday, 19 April 2011

París.

Fjölskyldan komin til Parísar og erum búin að fá alveg æðislegt veður og veðurspáin góð allan tímann, sól og blíða.

Í gær löbbuðum við að Notre Dame kirkjunni og fórum svo í siglingu á Signu. Fórum úr bátnum við Eiffel turninn en nenntum sko ekki að bíða í röð þar, mörg hundruð metra röð! En við röltum um þarna og tókum myndir. Svo var auðvitað stoppað og borðað og haft það gott. Svo fórum við í sundlaugina á hótelinu en það er sko hægt að setja út á það að búningsklefinn var pínulítill og svo smá sturta inni á klósettinu. Við fórum sko bara í sturtu á hótelherberginu. Enda virtist enginn fara í sturtu fyrir sundið hérna. Við vorum nú frekar þreytt eftir þetta allt saman þannig að við Helgi fórum og keyptum samlokur og svo horfðu krakkarnir á bíómynd á hótelinu sem við leigðum, heitir "Dumma mej" á sænsku, kannski "Aulinn ég" á íslensku.

Í dag erum við búin að fara hállfa leið upp Eiffel turninn því að þegar við vorum komin í miðjuna þá var hætt að selja miða upp á efstu hæðina. Við komum korteri áður en það opnaði og þvílík röð. En við létum okkur hafa það og biðum í röð í tæpa tvo tíma. Alveg svakalega flott útsýni úr turninum og ekki skemmdi veðrið fyrir. Það er búið að vera 25°C í dag. VIð tókum svo bát og sigldum um Signu og fórum af hjá Louvre safninu en það var reyndar lokað á þriðjudögum svo við kannski reynum aftur ef við höfum tíma. Á morgun er stefnan tekin á Disney World með krakkana.

Wednesday, 13 April 2011

Myndir af húsinu



Hérna eru tvær af myndunum frá ljósmyndaranum. Þessi fíni blái himinn kominn þrátt fyrir að myndirnar voru teknar þegar það var skýjað.

París.

Nú styttist heldur betur í Parísarferðina okkar. Við förum á sunnudaginn og verðum fram á föstudag. Við ætlum að kíkja í Disney land, Louvre safnið, Eiffel turninn, Notre Dame kirkjuna og svo bara dúlla okkur í bænum og borða bakkelsi! Vona bara að veðrið verði fínt.

Við eigum sko eftir að sakna þess að fá ekki páskaegg þessa páskana. Það er enginn að koma í heimsókn fyrir páska en mamma kemur 3.maí en það er nú ekki sama stemmning ef við fáum páskaegg þá. Við höfum alltaf haft það þannig á páskadags morgunn að fela páskaeggin og svo er hafin leit að þeim um húsið. En við ætlum að borða Ali svínahamborgarhrygg á páskadag þannig að það verður eitthvað íslenskt.


Sunday, 10 April 2011

Sumarblíða.

Það er búið að vera frábært veður hérna um helgina. Sól og blár himinn og hitinn fór í alla vega 17°C. Krakkarnir eru búnir að leika sér með vatnsblöðrur og í smá vatnsslag. Rakel fór svo með Carolinu vinkonu sinni og mömmu hennar í skógarferð með nesti og nýja skó. Þar var leikið og klifrað og haft gaman. Svo er bara kominn tími á að grilla í góða veðrinu. Best að njóta dagsins og morgundagsins því á þriðjudag á að koma rok og rigning.

Monday, 4 April 2011

Selja, selja.

Við hittum fasteignasala á föstudaginn og skrifuðum undir samning um að setja húsið okkar í Lundi á sölu. Það kemur svo ljósmyndari á föstudaginn og tekur myndir og allt ferlið er bara farið í gang. Svo er stefnan tekin á að auglýsa fyrir páska og opið hús þann 28. apríl sem fasteignasalinn sér alveg um.

Þetta er svolítið öðruvísi söluferli hérna heldur en á Íslandi. Þegar ljósmyndarinn kemur þá þarf helst að vera búið að fjarlægja allt af borðum, hillum, persónulegum myndum og taka heilmikið til. Jafnvel færa til húsgögn og bara heilmikil vinna. Það eru bara míni flutningar að fá ljósmyndara heim og svo einnig þegar sýningin á húsinu er. Svo er auðvitað mest af þessum hlutum sem við erum að nota og þá þarf að setja það aftur upp. En ég verð nú að segja að yfirleitt eru myndirnar og auglýsingarnar á netinu mjög flottar hérna. Maður sér nú mjög oft á myndum frá fasteignasölum á Íslandi að það er drasl útum allt, klósettsetan uppi, alls konar drasl og jafnvel matur á borði og fólk inn á myndunum. Það finnst manni ekki vera mjög faglegt.

Hægt er að kaupa tryggingu fyrir "leyndum göllum" og þá kemur fyrirtæki og skoðar allt húsið hátt og lágt og metur hvað gæti farið og allt svoleiðis. Seljandi er nefnilega ábyrgur í 10 ár fyrir leyndum göllum hér í Svíþjóð. Þessi trygging er frekar dýr en við viljum vera alveg frí undan einhverju veseni þegar við erum flutt til Íslands....10 ár! bara bull! Svo er alltaf verðlagt hérna sem "byrjunarverð". Yfirleitt er yfirboðið í húsin þ.e ef það er ekkert ruglverð og margir sem hafa áhuga á húsinu. En það hentar okkur bara mjög vel....fáum vonandi meira en uppsett verð.

Tuesday, 29 March 2011

Talið niður.

Síðasta vikan hans Helga í vinnunni í Swindon . Við teljum niður dagana og Helgi ætlar að kaupa sér freyðivín í flugvélinni á leiðinni heim og skála við sjálfan sig :-) Hann kemur heim á fimmtudagskvöldið og það er einnig síðasti vinnudagurinn hans hjá Applicon. Hann hefur þá unnið í 13 1/2 ár hjá fyrirtækinu þ.e Nýherja og Applicon. Þetta verður skrítið fyrir hann. Ég kynntist Helga þegar hann var nýbyrjaður hjá Nýherja þannig að ég þekki ekki að hann vinni annars staðar!

Svo byrjar Helgi hjá Íslandsbanka þann 1.maí. Hann flýgur strax til Íslands 2.maí í vinnuna, kemur aftur 10.maí og vinnur líklega bara í fjarvinnu þangað til við flytjum til Íslands.

Og eitt skemmtilegt í viðbót....mamma pantaði sér flug til mín þegar hún vissi að Helgi færi til Íslands. Hún kemur 3.maí - 14.maí....Gaman, gaman!!

Friday, 25 March 2011

Loksins að klárast.

Þá eru veikindin hjá Rakel loksins að klárast. Aumingja barnið er búið að vera með magaverk, niðurgang og gubba í tæpa viku núna. Hún er að fá matarlystina núna og hefur haldið því litla sem hún hefur borðað niðri í rúman sólarhring. Þannig að það lítur út fyrir að hún sé að ná sér.

Við hjónin erum að fara í matarklúbb á morgun til Siggu og Sigga. Ætli þetta verði ekki síðasti matarklúbburinn þar sem við erum öll. Magga og Björn Ingi flytja til Bandaríkjanna eftir mánuð og svo flytja Addi og Helga í sumar til Íslands og við flytjum líka til Íslands í sumar. Matarklúbburinn er bara að leysast upp! En restin heldur áfram að hittast þangað til allir eru farnir! Siggi og Sigga eru einu sem verða eftir í Svíþjóð....það er bara spurning hvað lengi??

Við erum búin að bóka tíma til að hitta fasteignasala eftir viku. Ætlum að fara að setja húsið á sölu. Reyna að láta auglýsa það fyrir páska, svo kemur bara í ljós hvernig allt saman gengur.


Saturday, 19 March 2011

Veikindi.

Fórum í smá verslunarleiðangur í morgun. Keyptum öryggisvesti fyrir Rakel í reiðskólann og svo gúmmístígvél á bæði börnin. Svo voru keyptar pylsur hjá Polsemannen en Rakel sagði að hún hefði ekki lyst á pylsunni....ha! Rakel...hún getur alltaf borðað og elskar það. En svo kvartaði hún yfir magaverk. Þegar heim var komið þá byrjaði ballið hjá litlu dömunni. Var með "upp og niður" veiki í allan dag. Sofnaði nokkrum sinnum og svo var það salernið inn á milli....aumingja Rakel. Hún sefur núna og vonandi nær hún að sofa sem lengst í nótt og vera betri á morgun.

Saturday, 12 March 2011

Tiltekt.

Erum byrjuð að taka aðeins til og losa okkur við "óþarfa" hluti. Búið að fara tvær ferðir á sænsku "Sorpu" með alls konar drasl. Einnig erum við búin að selja ýmsa hluti, nokkur húsgögn, reiðhjól sem voru of lítil og svo ætlum við að selja gestarúmið og svefnsófann þegar það er hætt í notkun.

Það er alla vega smá léttir að vera byrjuð á einhverju svona fyrir flutningana. Þó svo að það séu rúmir fjórir mánuðir í flutninga þá er betra að hafa ekki allt yfir fullt af drasli þegar við setjum húsið á sölu. Og tíminn er ótrúlega fljótur að líða....er komin með smá hnút í magann yfir hvað það styttist í að við flytjum. Er samt alveg tilbúin að flytja til Íslands og hlakka bara smá til en það er svo skrítið að vera að flytja fyrir fullt og allt frá Lundi. Þegar við fluttum til Lundar þá vissum við alltaf að við kæmum til baka til Íslands en núna er þetta eitthvað svo endanlegt!

Saturday, 5 March 2011

Loksins blogga ég aðeins.

Best að skrifa nokkrar línur um það sem hefur á daga okkar drifið. Við fórum til Íslands um miðjan desember og höfðum það alveg hrikalega gott. Það var svo notalegt að vera í húsinu okkar heima og hafa fjölskyldu og vini nálægt sér. Við héldum nokkur matarboð og var boðið í nokkur matarboð og fertugsafmæli. Lentum í fullt af flottum veislum, alveg frábær tími. Svo var haldið heim á leið í Lund þann 9. janúar og hversdagsleikinn byrjaði strax þann 10. jan þegar börnin byrjuðu í skólanum og Helgi fór svo strax til Englands að vinna þann 11 .janúar.

Helgi var nú að vinna frá íslensku skrifstofunni í Applicon hluta af Íslandsdvölinni en tók alveg frí milli jóla og nýárs. Hann fór í atvinnuviðtal og það voru þrjú fyrirtæki sem höfðu áhuga á að fá hann í vinnu.....góður starfskraftur með mikla reynslu :-) Og það fór svo að Helgi byrjar að vinna hjá Íslandsbanka þann 1.maí. Hann byrjar á því að vinna héðan frá Lundi og fer svo líklega smávegis til Íslands. Svo tekur hann sumarfrí í júlí og við stöndum í pökkun og flutningum á þeim tíma. Já....það er sem sagt ákveðið að við flytjum heim til Íslands í sumar. Mamma og pabbi koma til okkur um miðjan júlí og ætla að vera svo yndisleg að taka börnin heim og passa í viku svo við Helgi getum pakkað og gengið frá sem flestum málum hérna í Svíþjóð. Við komum svo heim 1.ágúst. Ég verð nú alveg að viðurkenna að ég er ekkert spennt að fara að pakka og flytja....vildi að ég gæti bara pakkað í eina ferðatösku og „galdrar“ allt komið heim til Íslands og raðað inn í skápa og tilbúið! En það skemmtilega við þetta er að þá tekur maður til í skápum og skúffum og hendir fullt af drasli.

Mamma, Hulda, Ólöf Björk, Íris Ösp og Finnur Gauti komu svo í heimsókn til okkar um miðjan febrúar og stoppuðu í 9 daga. Börnin voru í vetrarfríi hjá okkur þannig að það var mikið fjör hérna og auðvitað farið í verslunarleiðangra og Ólöf Björk, unglingurinn bara nokkuð góð í fatakaupum þó svo að hún hefði eflaust viljað kaupa miklu meira :-)

Rakel stendur sig eins og hetja í reiðskólanum og hefur bara gaman af. Einnig eru börnin komin með staðfesta skólavist í Fossvogsskóla í haust og það er fínt að það sé komið á hreint. Við erum reyndar búin að hafa það svo gott í sambandi við skólana hérna í Svíþjóð að börnin bara mæta í skólann með skólatösku og það er séð um allar bækur, ritföng og allt nema skólatöskuna.....þurfum ekkert að þvælast og kaupa skóladót.

Við erum virkilega farin að bíða eftir vorinu....nenni ekki lengur að hafa kalt, vill fá sól og passlega mikinn hita, það er erfitt að gera manni til geðs, eða hvað?

Við fjölskyldan erum búin að panta okkur nokkurra daga ferð til Parísar um páskana. Ætlum að fara með börnin í Disneyland parís og svo auðvitað að skoða Eiffelturnin, Louvre safnið, Notre Dame kirkjuna og rölta um miðbæinn.

Jæja, læt þetta duga í bili.