Best að skrifa nokkrar línur um það sem hefur á daga okkar drifið. Við fórum til Íslands um miðjan desember og höfðum það alveg hrikalega gott. Það var svo notalegt að vera í húsinu okkar heima og hafa fjölskyldu og vini nálægt sér. Við héldum nokkur matarboð og var boðið í nokkur matarboð og fertugsafmæli. Lentum í fullt af flottum veislum, alveg frábær tími. Svo var haldið heim á leið í Lund þann 9. janúar og hversdagsleikinn byrjaði strax þann 10. jan þegar börnin byrjuðu í skólanum og Helgi fór svo strax til Englands að vinna þann 11 .janúar.
Helgi var nú að vinna frá íslensku skrifstofunni í Applicon hluta af Íslandsdvölinni en tók alveg frí milli jóla og nýárs. Hann fór í atvinnuviðtal og það voru þrjú fyrirtæki sem höfðu áhuga á að fá hann í vinnu.....góður starfskraftur með mikla reynslu :-) Og það fór svo að Helgi byrjar að vinna hjá Íslandsbanka þann 1.maí. Hann byrjar á því að vinna héðan frá Lundi og fer svo líklega smávegis til Íslands. Svo tekur hann sumarfrí í júlí og við stöndum í pökkun og flutningum á þeim tíma. Já....það er sem sagt ákveðið að við flytjum heim til Íslands í sumar. Mamma og pabbi koma til okkur um miðjan júlí og ætla að vera svo yndisleg að taka börnin heim og passa í viku svo við Helgi getum pakkað og gengið frá sem flestum málum hérna í Svíþjóð. Við komum svo heim 1.ágúst. Ég verð nú alveg að viðurkenna að ég er ekkert spennt að fara að pakka og flytja....vildi að ég gæti bara pakkað í eina ferðatösku og „galdrar“ allt komið heim til Íslands og raðað inn í skápa og tilbúið! En það skemmtilega við þetta er að þá tekur maður til í skápum og skúffum og hendir fullt af drasli.
Mamma, Hulda, Ólöf Björk, Íris Ösp og Finnur Gauti komu svo í heimsókn til okkar um miðjan febrúar og stoppuðu í 9 daga. Börnin voru í vetrarfríi hjá okkur þannig að það var mikið fjör hérna og auðvitað farið í verslunarleiðangra og Ólöf Björk, unglingurinn bara nokkuð góð í fatakaupum þó svo að hún hefði eflaust viljað kaupa miklu meira :-)
Rakel stendur sig eins og hetja í reiðskólanum og hefur bara gaman af. Einnig eru börnin komin með staðfesta skólavist í Fossvogsskóla í haust og það er fínt að það sé komið á hreint. Við erum reyndar búin að hafa það svo gott í sambandi við skólana hérna í Svíþjóð að börnin bara mæta í skólann með skólatösku og það er séð um allar bækur, ritföng og allt nema skólatöskuna.....þurfum ekkert að þvælast og kaupa skóladót.
Við erum virkilega farin að bíða eftir vorinu....nenni ekki lengur að hafa kalt, vill fá sól og passlega mikinn hita, það er erfitt að gera manni til geðs, eða hvað?
Við fjölskyldan erum búin að panta okkur nokkurra daga ferð til Parísar um páskana. Ætlum að fara með börnin í Disneyland parís og svo auðvitað að skoða Eiffelturnin, Louvre safnið, Notre Dame kirkjuna og rölta um miðbæinn.
Jæja, læt þetta duga í bili.
No comments:
Post a Comment