Tuesday, 29 March 2011

Talið niður.

Síðasta vikan hans Helga í vinnunni í Swindon . Við teljum niður dagana og Helgi ætlar að kaupa sér freyðivín í flugvélinni á leiðinni heim og skála við sjálfan sig :-) Hann kemur heim á fimmtudagskvöldið og það er einnig síðasti vinnudagurinn hans hjá Applicon. Hann hefur þá unnið í 13 1/2 ár hjá fyrirtækinu þ.e Nýherja og Applicon. Þetta verður skrítið fyrir hann. Ég kynntist Helga þegar hann var nýbyrjaður hjá Nýherja þannig að ég þekki ekki að hann vinni annars staðar!

Svo byrjar Helgi hjá Íslandsbanka þann 1.maí. Hann flýgur strax til Íslands 2.maí í vinnuna, kemur aftur 10.maí og vinnur líklega bara í fjarvinnu þangað til við flytjum til Íslands.

Og eitt skemmtilegt í viðbót....mamma pantaði sér flug til mín þegar hún vissi að Helgi færi til Íslands. Hún kemur 3.maí - 14.maí....Gaman, gaman!!

Friday, 25 March 2011

Loksins að klárast.

Þá eru veikindin hjá Rakel loksins að klárast. Aumingja barnið er búið að vera með magaverk, niðurgang og gubba í tæpa viku núna. Hún er að fá matarlystina núna og hefur haldið því litla sem hún hefur borðað niðri í rúman sólarhring. Þannig að það lítur út fyrir að hún sé að ná sér.

Við hjónin erum að fara í matarklúbb á morgun til Siggu og Sigga. Ætli þetta verði ekki síðasti matarklúbburinn þar sem við erum öll. Magga og Björn Ingi flytja til Bandaríkjanna eftir mánuð og svo flytja Addi og Helga í sumar til Íslands og við flytjum líka til Íslands í sumar. Matarklúbburinn er bara að leysast upp! En restin heldur áfram að hittast þangað til allir eru farnir! Siggi og Sigga eru einu sem verða eftir í Svíþjóð....það er bara spurning hvað lengi??

Við erum búin að bóka tíma til að hitta fasteignasala eftir viku. Ætlum að fara að setja húsið á sölu. Reyna að láta auglýsa það fyrir páska, svo kemur bara í ljós hvernig allt saman gengur.


Saturday, 19 March 2011

Veikindi.

Fórum í smá verslunarleiðangur í morgun. Keyptum öryggisvesti fyrir Rakel í reiðskólann og svo gúmmístígvél á bæði börnin. Svo voru keyptar pylsur hjá Polsemannen en Rakel sagði að hún hefði ekki lyst á pylsunni....ha! Rakel...hún getur alltaf borðað og elskar það. En svo kvartaði hún yfir magaverk. Þegar heim var komið þá byrjaði ballið hjá litlu dömunni. Var með "upp og niður" veiki í allan dag. Sofnaði nokkrum sinnum og svo var það salernið inn á milli....aumingja Rakel. Hún sefur núna og vonandi nær hún að sofa sem lengst í nótt og vera betri á morgun.

Saturday, 12 March 2011

Tiltekt.

Erum byrjuð að taka aðeins til og losa okkur við "óþarfa" hluti. Búið að fara tvær ferðir á sænsku "Sorpu" með alls konar drasl. Einnig erum við búin að selja ýmsa hluti, nokkur húsgögn, reiðhjól sem voru of lítil og svo ætlum við að selja gestarúmið og svefnsófann þegar það er hætt í notkun.

Það er alla vega smá léttir að vera byrjuð á einhverju svona fyrir flutningana. Þó svo að það séu rúmir fjórir mánuðir í flutninga þá er betra að hafa ekki allt yfir fullt af drasli þegar við setjum húsið á sölu. Og tíminn er ótrúlega fljótur að líða....er komin með smá hnút í magann yfir hvað það styttist í að við flytjum. Er samt alveg tilbúin að flytja til Íslands og hlakka bara smá til en það er svo skrítið að vera að flytja fyrir fullt og allt frá Lundi. Þegar við fluttum til Lundar þá vissum við alltaf að við kæmum til baka til Íslands en núna er þetta eitthvað svo endanlegt!

Saturday, 5 March 2011

Loksins blogga ég aðeins.

Best að skrifa nokkrar línur um það sem hefur á daga okkar drifið. Við fórum til Íslands um miðjan desember og höfðum það alveg hrikalega gott. Það var svo notalegt að vera í húsinu okkar heima og hafa fjölskyldu og vini nálægt sér. Við héldum nokkur matarboð og var boðið í nokkur matarboð og fertugsafmæli. Lentum í fullt af flottum veislum, alveg frábær tími. Svo var haldið heim á leið í Lund þann 9. janúar og hversdagsleikinn byrjaði strax þann 10. jan þegar börnin byrjuðu í skólanum og Helgi fór svo strax til Englands að vinna þann 11 .janúar.

Helgi var nú að vinna frá íslensku skrifstofunni í Applicon hluta af Íslandsdvölinni en tók alveg frí milli jóla og nýárs. Hann fór í atvinnuviðtal og það voru þrjú fyrirtæki sem höfðu áhuga á að fá hann í vinnu.....góður starfskraftur með mikla reynslu :-) Og það fór svo að Helgi byrjar að vinna hjá Íslandsbanka þann 1.maí. Hann byrjar á því að vinna héðan frá Lundi og fer svo líklega smávegis til Íslands. Svo tekur hann sumarfrí í júlí og við stöndum í pökkun og flutningum á þeim tíma. Já....það er sem sagt ákveðið að við flytjum heim til Íslands í sumar. Mamma og pabbi koma til okkur um miðjan júlí og ætla að vera svo yndisleg að taka börnin heim og passa í viku svo við Helgi getum pakkað og gengið frá sem flestum málum hérna í Svíþjóð. Við komum svo heim 1.ágúst. Ég verð nú alveg að viðurkenna að ég er ekkert spennt að fara að pakka og flytja....vildi að ég gæti bara pakkað í eina ferðatösku og „galdrar“ allt komið heim til Íslands og raðað inn í skápa og tilbúið! En það skemmtilega við þetta er að þá tekur maður til í skápum og skúffum og hendir fullt af drasli.

Mamma, Hulda, Ólöf Björk, Íris Ösp og Finnur Gauti komu svo í heimsókn til okkar um miðjan febrúar og stoppuðu í 9 daga. Börnin voru í vetrarfríi hjá okkur þannig að það var mikið fjör hérna og auðvitað farið í verslunarleiðangra og Ólöf Björk, unglingurinn bara nokkuð góð í fatakaupum þó svo að hún hefði eflaust viljað kaupa miklu meira :-)

Rakel stendur sig eins og hetja í reiðskólanum og hefur bara gaman af. Einnig eru börnin komin með staðfesta skólavist í Fossvogsskóla í haust og það er fínt að það sé komið á hreint. Við erum reyndar búin að hafa það svo gott í sambandi við skólana hérna í Svíþjóð að börnin bara mæta í skólann með skólatösku og það er séð um allar bækur, ritföng og allt nema skólatöskuna.....þurfum ekkert að þvælast og kaupa skóladót.

Við erum virkilega farin að bíða eftir vorinu....nenni ekki lengur að hafa kalt, vill fá sól og passlega mikinn hita, það er erfitt að gera manni til geðs, eða hvað?

Við fjölskyldan erum búin að panta okkur nokkurra daga ferð til Parísar um páskana. Ætlum að fara með börnin í Disneyland parís og svo auðvitað að skoða Eiffelturnin, Louvre safnið, Notre Dame kirkjuna og rölta um miðbæinn.

Jæja, læt þetta duga í bili.