Ég bíð spennt eftir að rútínan byrji aftur á þessu heimili. Krakkarnir byrja í skólanum á fimmtudaginn 8.janúar.
Ég stefni á það að halda áfram í ræktinni og byrja vonandi á því á fimmtudag, alla vega föstudag. Ástandið á mér er nú ekki gott þessa dagana. Er búin að liggja í sukki og sælgæti í heilan mánuð eða meira. Og ég er búin að vera ótrúlega viljug að baka og búa til eitthvað gotterí. Fengum fullt af íslensku nammi og ég er búin að borða 80% af því. Það er sem betur fer búið núna. Ég ætla hvern einasta dag að byrja að trappa mig niður í áti en einhvern veginn fer allt í sama horfið.....narta allan daginn í sætindi...arrgg!
En vonandi kems þetta í rétt horf þegar rútínan byrjar.
Tuesday, 6 January 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment