Helgi stakk af til Stokkhólms í gær til að vinna og verður alla vikuna.
Krakkarnir fóru á sundnámskeið í gær og gekk ágætlega. Reyndar eru sundlaugarnar hérna alveg ískaldar og ég vorkenni krökkunum að fara ofan í. Arnar Ingi á líka mjög erfitt með það og fyrsti sundtíminn var algjör martröð. Hann bara stóð alveg stjarfur og vildi ekkert gera, vældi og vildi bara fara uppúr. Hann tók ekki þátt í neinu. Tíminn í gær gekk mun betur og hann var hetja og reyndi að synda en var svolítið lengi að byrja á því.
Og smá fréttir...ég og Rakel ætlum að koma til Íslands í skólafríi krakkana í febrúar. Við verðum 14-22.febrúar. Það verður vonandi ekki ófært, man að í fyrra á sama tíma var mamma að berjast við að komast aftur til Íslands en það var ekki hægt að fljúga vegna storms á Íslandi. Ég sé nú alveg fyrir mér hvernig þeir feðgar verða í fríinu. Hangandi saman í tölvuleikjum langt fram eftir og gleyma að borða og sofa svo lengi á morgnanna. Þeir verða eins og tveir unglingar! Ekki nema ég verði eins og eggjaklukka og hringi á þriggja tíma fresti og minni þá á að borða og svo hringi ég og segi að nú eigi þeir að fara að sofa!! Nei, ég ætla sko bara að njóta þess að vera á Íslandi með Rakel.
Ég fór í saumaklúbb á föstudagskvöldið og við vorum einnig að kveðja eina í saumaklúbbnum sem var að flytja til Ísland á laugardaginn. Við vorum alveg óvanalega lengi miðað við okkur þreyttu húsmæður í saumaklúbbnum og ég kom ekki heim fyrr en rúmlega hálf þrjú.
Svo fórum við Helgi í matarklúbb til Möggu og Björns Inga á laugardagskvöldið. Og auðvitað gat hún Emelie barnapían okkar passað! Hún klikkar ekki. Við fengum andarpaté í forrétt, svo var fondue með nautalund og tilheyrandi í aðalrétt og tiramisu í eftirrétt. Þetta var alveg frábært kvöld og við skemmtum okkur öll alveg stórvel. Við erum átta í matarklúbbnum, góður og skemmtilegur hópur. Svo kemur að okkur Helga næst að vera með matarklúbb....hmmmm, hvað á þá að bjóða uppá? En það er hausverkur seinni tíma.
Tuesday, 20 January 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment