Monday, 23 February 2009

Myndir frá Íslandsferðinni 14-22.febrúar.


Hjónakornin í eldhúsinu. Maggi og Unnur.

Matarboð. Helgi, Maggi, Ármann, Ágúst Karel, Unnur og Ágúst.

Maggi og Helgi að kíkja á TV.

Ágúst að horfa á fréttir.

Pizzupartý. Ármann, Rakel, Tinna, Ágúst og Arnar Ingi.

Frændsystkinin, Arnar, Tinna, Ágúst og Rakel.

Finnur Gauti 6 ára. Rakel og Íris Ösp.

Sigrún og Steinunn Ólína.

Gréta og Halli.

Rakel og Hannes Aron.

Rakel missti tönn á Íslandi og seldi afa sínum.

Arnar Ingi að spila tölvuleik.

Fínir feðgar. Ágúst og Helgi.

Í Perlunni.

Fertugsafmæli Dóru og Ingu. Þórdís, Bryndís, Dóra og Inga.


Inga og Dóra í heimsókn hjá Bryndísi.

Kaffihúsahittingur, Kaffi Mílanó. Svandís, Anna María og Hafdís.

Mæðgurnar í vestunum sem Anna María prjónaði.

Gleði og sorg.

Þá er Íslandsferðin að baki hjá okkur. Það voru bæði gleði og sorgarstundir. Tengdamóðir mín lést þann 13.febrúar eftir erfið veikindi. Haldin var falleg athöfn í Fossvogskapellu með fjölskyldunni og svo fórum við saman í Perluna á eftir.

Við mæðgurnar fórum til Íslands 14.febrúar og svo komu feðgarnir 17.febrúar. Við flugum svo öll saman heim 22.febrúar.

Ég fór í tvöfalt fertugsafmæli hjá Ingu og Dóru strax á laugardagskvöldinu eftir að ég lenti.Svo var hittingur með ameríkuhópnum á Kaffi Mílanó og svo hittist partur af saumaklúbbnum heima hjá Bryndísi. Kíkti svo til Svandísar og hitti einnig Sigrúnu Karls.Og auðvitað matarboð hjá Villa og Huldu og mömmu og pabba. Og kaffiboð hjá mömmu og pabba. Svo má ekki gleyma að Finnur Gauti hélt upp á 6 ára afmælið sitt.Við fórum einnig í matarboð til Unnar og Magga ásamt Ármanni og tengdapabba.

Við fjölskyldan fórum svo nokkrum sinnum í sund og náðum bíóferð að sjá Bolt. Það var sko nóg að gera og við náðum ekki einu sinni að hitta alla sem við vildum og einnig langaði okkur í bíó (ekki á barnamynd) en það verður þá bara næst.

Anna María var svo góð að redda mér gestakorti í Sporthúsinu og ég náði að fara þangað þrisvar, fegin því að hreyfa mig eitthvað því að það er sko mikið át og gleði sem fylgir svona Íslandsferðum. Og auðvitað þarf að borða fullt af íslensku nammi og lakkrís! Og snúðum og vínarbrauðum, úpps! fyllist bara hryllingi að skrifa þetta, sé þá hvað átið er mikið á manni. Og það er ekki alveg búið þegar heim er komið því fríhafnarnammið er eftir!

Monday, 9 February 2009

Ein í kotinu......

.....eða ekki alveg, krakkarnir eru hjá mér. Helgi er farinn til Íslands, fór á laugardaginn og kemur aftur á miðvikudaginn. Hann er notaður í innkaup, á að koma með fisk, lýsi og lifrarpylsu til baka.
Svo förum við Rakel til Íslands næsta laugardag 14.febrúar til 22. febrúar. Ég byrja nú á því þegar ég er nýlent að fara í tvöfalt fertugsafmæli um kvöldið hjá Dóru og Ingu. Það verður gaman, nú verður maður bara að biðja að það verði ekki seinkun á fluginu!

Ég er að fara í foreldrakaffi í skólanum hjá Rakel á morgun. Bekkurinn hennar er búinn að baka Semlor (bollur) sem á að bjóða uppá, hún er voðalega spennt yfir þessu.

Ég er alveg að verða vitlaus á sjálfri mér, ég bara fitna, það er eins og líkaminn á mér hafi ákveðið um áramótin að nú yrði ég einu ári eldri og þá væri best að hægja á brennslu líkamans! Ég sem er búin að vera rosalega dugleg í ræktinni, hreyfi mig eitthvað alla daga vikunnar, lyfti þrisvar sinnum og góð brennsla tvisvar og svo einhverjir göngutúrar inn á milli. Óþolandi!!
En ég er reyndar komin með betra þol og hlýt að vera eitthvað hraustari þó svo að útlitið skáni ekkert!

Jæja, ætla að fara koma börnunum í rúmið, hafið það gott.

Sunday, 8 February 2009

Ágúst við tölvuna í Bjarmó.

Thursday, 5 February 2009

Hann á afmæli í dag....

Já, hann á afmæli í dag, hann Helgi, bara orðinn 39.ára kallinn!

Ég og krakkarnir vöktum hann í morgunn með afmælissöng og afmælispakka. Bakaði súkkulaðiköku og er að fara að sækja krakkana til að við getum farið að borða kökuna.
Ætla að elda hátíðamat í kvöld og hafa þá óhollustu með, brúnaðar kartöflur og rjómasveppasósu.

Helgi er svo að fara til Íslands á laugardaginn og verður fram á miðvikudag.
Ég og Rakel komum svo til Íslands 14.febrúar og verðum til 22.febrúar.

Arnar Ingi orðinn hress og kátur, hann fór í skólann í dag. Héldum honum lengi heima því að þeir sem hafa verið veikir í skólanum hafa margir farið til baka aftur, komnir með hita! Ákváðum að hafa hann lengur heima og vonandi sleppur hann þá alveg við að slá niður aftur. Arnar Ingi fer svo í annan píanótímann sinn í dag.

Sunday, 1 February 2009

Vetur

Haldið þið ekki að það sé bara komin smá vetur hér í Lundi. Það snjóaði aðeins í nótt, alla vega þannig að jörðin varð hvít. Svo er búið að vera vindur í dag þannig að það hefur verið snjófok. Verð að viðurkenna að þetta er svona íslensk tilfinning að finna snjóinn reyna að troðast alls staðar inn á mann. Ég er reyndar ekkert spennt fyrir þessu, vil miklu frekar vera með Skánska veturinn, skýjað og svona 2-5° c hita og auð jörð. En það á bara að vera hvasst á mánudag og eitthvað á þriðjudag og svo verður aftur stillt veður.....sem betur fer, nenni ekki vetri!

Arnar Ingi er búinn að vera með flensuna. Þufti að sækja hann í skólann á föstudaginn og svo svaf hann bara megnið af deginum. Hann er nú búinn að vera heldur hressari núna en samt með einhverja hitavellu. Ætlum að hafa hann heima alla vega á morgun og kannski þriðjudag þ.e.a.s ef hann heldur áfram að hressast annars verður hann lengur heima greyið.

Rakel fékk Lauru vinkonu sína í heimsókn í dag og þær fóru út að renna sér á snjóþotu, það standa samt grastopparnir upp úr snjónum en alveg hægt að renna sér í brekkunum.
Svo voru þær hérna inni og léku sér heillengi.
Ég bakaði súkkulaði og kókos formköku í dag og hún er rosalega góð, alla vega fannst stelpunum það og okkur Helga. Arnar Ingi var ekki eins hrifinn en bragðlaukarnir hjá honum eru ekki alveg í lagi núna í veikindunum því honum finnst vatnið líka vont og epladjúsið sterkt þó svo að hinum finnist það ekki.