Haldið þið ekki að það sé bara komin smá vetur hér í Lundi. Það snjóaði aðeins í nótt, alla vega þannig að jörðin varð hvít. Svo er búið að vera vindur í dag þannig að það hefur verið snjófok. Verð að viðurkenna að þetta er svona íslensk tilfinning að finna snjóinn reyna að troðast alls staðar inn á mann. Ég er reyndar ekkert spennt fyrir þessu, vil miklu frekar vera með Skánska veturinn, skýjað og svona 2-5° c hita og auð jörð. En það á bara að vera hvasst á mánudag og eitthvað á þriðjudag og svo verður aftur stillt veður.....sem betur fer, nenni ekki vetri!
Arnar Ingi er búinn að vera með flensuna. Þufti að sækja hann í skólann á föstudaginn og svo svaf hann bara megnið af deginum. Hann er nú búinn að vera heldur hressari núna en samt með einhverja hitavellu. Ætlum að hafa hann heima alla vega á morgun og kannski þriðjudag þ.e.a.s ef hann heldur áfram að hressast annars verður hann lengur heima greyið.
Rakel fékk Lauru vinkonu sína í heimsókn í dag og þær fóru út að renna sér á snjóþotu, það standa samt grastopparnir upp úr snjónum en alveg hægt að renna sér í brekkunum.
Svo voru þær hérna inni og léku sér heillengi.
Ég bakaði súkkulaði og kókos formköku í dag og hún er rosalega góð, alla vega fannst stelpunum það og okkur Helga. Arnar Ingi var ekki eins hrifinn en bragðlaukarnir hjá honum eru ekki alveg í lagi núna í veikindunum því honum finnst vatnið líka vont og epladjúsið sterkt þó svo að hinum finnist það ekki.
Sunday, 1 February 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment