Þá er Íslandsferðin að baki hjá okkur. Það voru bæði gleði og sorgarstundir. Tengdamóðir mín lést þann 13.febrúar eftir erfið veikindi. Haldin var falleg athöfn í Fossvogskapellu með fjölskyldunni og svo fórum við saman í Perluna á eftir.
Við mæðgurnar fórum til Íslands 14.febrúar og svo komu feðgarnir 17.febrúar. Við flugum svo öll saman heim 22.febrúar.
Ég fór í tvöfalt fertugsafmæli hjá Ingu og Dóru strax á laugardagskvöldinu eftir að ég lenti.Svo var hittingur með ameríkuhópnum á Kaffi Mílanó og svo hittist partur af saumaklúbbnum heima hjá Bryndísi. Kíkti svo til Svandísar og hitti einnig Sigrúnu Karls.Og auðvitað matarboð hjá Villa og Huldu og mömmu og pabba. Og kaffiboð hjá mömmu og pabba. Svo má ekki gleyma að Finnur Gauti hélt upp á 6 ára afmælið sitt.Við fórum einnig í matarboð til Unnar og Magga ásamt Ármanni og tengdapabba.
Við fjölskyldan fórum svo nokkrum sinnum í sund og náðum bíóferð að sjá Bolt. Það var sko nóg að gera og við náðum ekki einu sinni að hitta alla sem við vildum og einnig langaði okkur í bíó (ekki á barnamynd) en það verður þá bara næst.
Anna María var svo góð að redda mér gestakorti í Sporthúsinu og ég náði að fara þangað þrisvar, fegin því að hreyfa mig eitthvað því að það er sko mikið át og gleði sem fylgir svona Íslandsferðum. Og auðvitað þarf að borða fullt af íslensku nammi og lakkrís! Og snúðum og vínarbrauðum, úpps! fyllist bara hryllingi að skrifa þetta, sé þá hvað átið er mikið á manni. Og það er ekki alveg búið þegar heim er komið því fríhafnarnammið er eftir!
Monday, 23 February 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment