Það styttist í það að mamma og pabbi koma í heimsókn. Bara vika þangað til, þau koma 17.nóvember....gaman, gaman.
Rakel fór í skátaferð á sunnudaginn og skemmti sér vel. Arnar Ingi fór og tók sundmerki. Það er tekið próf í sundskólanum (ef börnin vilja) og séð hvað þau kunna mikið. Svo er sagt hvaða sundmerki gildir fyrir hverja æfingu/getu. Arnar Ingi tók 5 sundmerki og er rosalega stoltur, þetta eru svona nælur og þar sést í hvaða flokki þau eru í.
Krakkarnir fóru í bólusetninguna fyrir svínaflensunni í skólanum síðasta fimmtudag. Það var mjög þægilegt, bara komið í skólann og börnin bólusett, ekkert að panta tíma og fara á heilsugæsluna. Þau voru rosalega dugleg og þetta tók fljótt af. Þau voru bæði mjög aum í handleggnum í tvo daga og Arnar Ingi var slappur á föstudeginum og fór ekki í skólann. Hann fékk illt í magann og smá hita og svo illt í handleggnum. En þau eru eldhress núna.
Ég fer til tannsa á morgun í árlega skoðun og svo er bara að vona það besta, að ekkert sé skemmt.
Við erum með matarboð á laugardaginn fyrir matarklúbbinn okkar, það verður gaman að hitta allan hópinn.
Bara þrjár vikur eftir að þessu grasekkjustandi mínu. Eftir það á Helgi nú að vera í fríi frá Swindon, getur líklega unnið heiman frá okkur í desember og svo verður líklega þannig að hann fer aðra hverja viku til Swindon og vinnur aðra hverja viku heiman frá. Það verður strax mikill munur. Og þetta byrjar þá í janúar.
Monday, 9 November 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment