Sunday, 1 November 2009

Vetrarfrí

Núna er vetrarfríinu að ljúka. Við erum búin að vera í fríi í heila viku þ.e ég og krakkarnir, Helgi auðvitað að vinna í Englandi eins og venjulega. Við erum búin að hafa það frekar rólegt, vinir í heimsókn og krakkarnir í heimsókn hjá vinum. Fórum einu sinni í sund og svo er búið að vera Halloween hérna. Við höfum verið síðustu tvö vetrarfrí á Íslandi þannig að þetta er í fyrsta skiptið sem við erum hérna á Halloween. Við vorum nú ekki viss um hvað það væri mikið haldið uppá það hérna í Svíþjóð en það virðist vera eitthvað aðeins. Krakkarnir fóru um með grímur og bönkuðu hjá fólki og sögðu "Bus eller godis" sem er auðvitað "Trick or treat". Þau komu svo með fulla fötu af nammi heim. Og svo voru þó nokkuð að krökkum sem komu til okkar og ég var tilbúin með nammi handa þeim. Helgi skar út grasker í fyrsta skiptið og það heppnaðist bara vel. Við höfðum það svo fyrir utan og kveiktum á kerti inni í því....bara nokkuð flott!

Við fjölskyldan fórum svo í bíó í dag og sáum myndina UPP....frekar skemmtileg mynd, ágætis húmor.

Núna eru feðgarnir að horfa á síðustu myndina af Lord of the rings. Búnir að horfa á alla seríuna í nokkrum hollum á líklega einum mánuði. Ég hélt að þetta væri nú kannski of ógeðslegar myndir fyrir Arnar Inga en nei, hann var rosalega spenntur yfir myndunum.

Svo á morgun er skóli hjá okkur og sundnámskeið og öll rútínan, Helgi að fara til Englands og núna er bara fjórar vikur eftir.

No comments: