Þá styttist heldur betur í jólin. Helgi er komin heim frá Englandi og komin í jólafrí, hann fer ekki að vinna fyrr en 11.janúar aftur. Krakkarnir líka komnir í jólafrí og ég......veit ekki, alltaf sama vinnan hjá mér, þvo, þrífa, kaupa í matinn, elda o.s.frv....
Það bara snjóar og snjóar hérna í Lundi og það er alveg frábært. Þetta er þriðji veturinn okkar hérna og við höfum ekki séð svona mikinn snjó hérna. Erum með útiborð í garðinum og það er ca. 40cm snjór ofan á borðinu. Krakkarnir eru bara úti að leika sér í snjónum og að renna sér á snjóþotum.
Við vorum í mat hjá Möggu og Birni Inga í kvöld og það var gaman að hitta þau, góður matur. Rakel var svo þreytt eftir að hafa verið með vinkonu sína í næturgistingu og þær vöknuðu kl.6 í morgun og svo er hún búin að vera úti í allan dag að hún sofnaði í sófanum hjá Möggu og Birni Inga og svaf þar meirihluta kvöldsins. Svo geispaði hún alla leiðina heim og sofnaði nánast strax aftur.
Við erum ekki alveg búin að ákveða hvað við ætlum að hafa í matinn á aðfangadagskvöld en erum með þá hugmynd að hafa hreindýrakjöt eða eitthvað álíka. Svo á ég íslenskan lambahrygg sem við ætlum að hafa líka um jólahátíðina.
Annan í jólum ætlar svo matarklúbburinn að hittast ásamt börnum heima hjá Siggu og Sigga í kaffiboð. Við fjölskyldan komum svo til Íslands 28.desember.
Saturday, 19 December 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment