Saturday, 12 December 2009

Komin tími til.....

....að skrifa smá á bloggið.
Mamma og pabbi voru hérna hjá mér í nóvember og það var æðislegt að hafa þau. Við fórum svo saman til Íslands og ég var þar í 10 daga en Helgi var heima með börnin. Það gekk alveg ágætlega en auðvitað með smá hnökrum ;-) Hann var nú frekar glaður að fá mig heim og sagði ég hlakka til að fá mat að borða! Og svo beið auðvitað fullt af þvotti að þvo en ég held nú samt að aumingja Arnar Ingi hafi nú bara verið í sömu fötunum allan tímann með ég var á Íslandi, skipti bara um sokka og nærbuxur....litli kallinn minn, ef honum er ekki sagt til þá bara er hann!

Þegar ég kom til Íslands og í Lálandið þá var þar allt á fullu við að laga og breyta í húsinu. Ég hélt nú að það myndi nú aldrei takast en með vinnu frá morgni til kvölds og með mömmu og pabba sem þræla tókst okkur að breyta Lálandinu í smá heimili. Það er reyndar ekki alveg búið eldhúsið hjá okkur, eftir að setja framan á allar skúffur og alla skápa en það verður vonandi gert eftir helgina og þá er allt að verða klárt. Við fjölskyldan komum svo öll til Íslands 28.desember og verðum til 8.janúar. Mér hefði aldrei tekist þetta án mömmu og pabba og svo kom Sigrún Karls einn daginn og vann eins og þræll. Það munar ótrúlega um hverja manneskju sem hjálpar til.
Ég get nú alveg sagt að mér fannst þetta nú ekkert sérstaklega skemmtileg Íslandsferð en ég vissi það nú svo sem. Bara þrif og að rífast aðeins við iðnaðarmenn. Hitti ekki marga vini mína en ég á það bara til góða þegar við komum um áramótin.
Ég ætlaði að kaupa eitthvað af íslenskum mat til að fara með til Lundar en það var hrúgað á mig svo mörgum jólagjöfum til barnanna að ég tók eiginlega ekkert með mér, þurfti meiri að segja að skilja eftir 2 jólagjafir og leðurstígvélin mín. Þó svo að pakkarnir séu kannski ekki þungir þá taka þeir svo mikið pláss og ég var nú ekki með einhverja risatösku. En það eru alla vega komnir pakkar til krakkana hingað. Ég verð bara að kaupa mat næst þegar við komum.

Því miður er jólaskapið ekki alveg komið í mig, ég sem hef alltaf verið svo mikið fyrir jólin og er alltaf tilbúin með allar skreytingar og jólaljósin 1.desember. Núna er ég bara ekki að nenna þessu og er svona að rembast við að skreyta eitthvað og gera aðeins jólalegt. Ég nenni nú samt ekki að skreyta svona mikið eins og ég hef gert áður. Svo þarf bara að fara að setja sig í gírinn og búa til jólaísinn, hann er nú alveg ómissandi um jólin.

Við fórum á Luciuhátíð í skólanum hjá Arnari Inga á miðvikudagskvöldið og þau voru alveg yndisleg þessir krakkar. Svo verður Lúsíuhátíðin hjá Rakel á mánudagskvöldið.

Við erum að fara í matarboð í kvöld til Ragnheiðar og Rafns og þau eru búin að bjóða alveg hrúgu af íslendingum, alltaf svo mikill kraftur í þeim, þau eru með 3 börn og það fjórða á leiðinni.

Helgi er að fara til Englands á mánudaginn en kemur sem betur fer heim á fimmtudagskvöldið...þá verður engin Englandsferð fyrr en um miðjan janúar.

No comments: