Friday, 27 June 2008

Kvöldmatur


Borðuðum kvöldmat á hótelinu.

Atlantis safnið

Legoborg

Mér fannst þessar dúpló fígúrur alltaf soldið krípí

Vatnsbyssustríð

Uppáhaldstækið hans Arnars Inga í Legolandi.

Rakel skemmtir sér í saklausu tæki.

Arnar Ingi 8 ára

Til hamingju með afmælið Arnar Ingi!

Fórum í Legoland og búin að arka þar í tvo daga. Fullt að skoða og mjög skemmtilegur garður. Sem fyrr er það Rakel sem er sjúk í öll "háska" tæki en Arnar Ingi vill frekar horfa á og keyra í rólegheitum á bílum og sigla bátum. Hann fann reyndar eitt tæki sem hentaði vel og hann fór mörgum sinnum í. Það var að sigla um á bát með vatnsbyssu og berjast við áhorfendur á bakkanum sem voru líka með vatnsbyssur.

Fengum mjög gott veður á fimmtudeginum, sól og blíðu.Föstudagurinn sem var afmælisdagur Arnars Inga byrjaði með rigningu en þegar við vorum í Legolandi komu kannski þrír stuttir skúrir. Svo braust sólin fram og skein það sem eftir var. Héldum pínu litla afmælisveislu fyrir strákinn með muffins og sælgæti í Legolandi og Anna María, Árni og Hannes Aron voru með okkur.

Núna eru Anna María og co. í Kaupmannahöfn og fara til Íslands á morgun. Næstu gestir til okkar koma svo ekki fyrr en á þriðjudag....ég næ vel að þvo og ganga frá þangað til.

Hafið það gott um helgina og takk fyrir afmæliskveðjurnar með SMS og e-mail til Arnars Inga.

Thursday, 26 June 2008

Komin í Legoland

Wednesday, 25 June 2008

Gullgröftur

Við fundum nokkra gullmola í gullgreftri og fengum medalíur í verðlaun!

Í sundlaugargarðinum

Sundlaugin ísköld og krakkarnir ekki alveg búnir að venjast vatninu á þessari mynd.

Hoppað á trampólíni

Tosselilla

Fórum í Tosselilla í dag í tívolí og vatnaskemmtigarð. Mjög skemmtilegur garður og við hefðum getað verið miklu lengur. Vorum mætt kl.11 og garðurinn lokaði kl.17. Áttum eftir að prófa fullt og krakkarnir vildu ólmir leika í öllum leikköstulum og rólóvöllum sem voru þarna. Fórum í klessubíla, rússíbana, gullgrafaraleit og margt fleira. Svo var þarna Tarzan skógur sem var fullur af þrautum. Hægt var að fara í minigolf og á hestbak á poníhesta. Við náðum nú ekki að gera það.

Við fjölskyldan eigum sko eftir að fara þangað aftur, nóg að skoða og nóg að gera. Fengum mjög gott veður en sundlaugarnar voru frekar kaldar...það er sagt að þær séu 24°c heitar sem er nú ekki mikið. Krakkarnir náðu samt að skemmta sér vel.

Tuesday, 24 June 2008

Sumarfrí

Núna eru krakkarnir komnir formlega í sumarfrí. Þau hafa verið að fara á frístundaheimilið nokkra tíma á dag.

Við ætlum að fara á morgun til Tosselilla sem er tivolí og vatnsskemmtigarður hérna á Skáni. Krakkarnir eru búnir að bíða eftir þessu lengi því að við ákváðum að fara þegar Anna María, Árni og Hannes Aron kæmu.

Núna eru þau (Anna og co.) í Kaupmannahöfn. Þau fóru snemma í morgun og ætla að eyða deginum þar. Ég fór í golfkennslu og ekki get ég sagt að ég sé efnileg. Stundum hitti ég vel og næsta högg er svo alveg glatað. Veit aldrei hvað ég geri rétt eða vitlaust! En æfingin skapar meistarann og vonandi hef ég betri tíma til að æfa mig seinnipartinn í júlí þegar gestagangur og sumarhúsaferð til Danmerkur er búin.

Svo er það Legoland á fimmtudag og Arnar Ingi á svo afmæli á föstudaginn. Ég var að baka muffins í dag sem ég ætla að taka með og einnig cornflakes kökur. Það verður að duga í bili sem afmælisveisla. Við förum svo eitthvað út að borða á afmælisdaginn og afmælisbarnið velur stað, sem verður líklega McDonalds eða álíka! Seinna verður svo stráka afmæli þegar vinirnir eru allir heima, það er erfitt að eiga afmæli í miðju sumarleyfi.

Saturday, 21 June 2008

Beðið eftir strætó

Fórum í bæinn og kíktum á Dómkirkjuna í Lundi. Bærinn alveg steindauður því það er midsommar og nánast allt lokað nema eitt og eitt kaffihús opið. Við kíktum á Espresso House og fengum okkur kaffi og köku.

Eldri karlpeningurinn fór svo heim og settist út í garð og drakk bjór! Við Anna María fórum í matvörubúð á meðan að versla inn. Yngri karlpeningurinn (Arnar og Hannes) fór út á leikvöll og hamaðist þar. Þeir eru alveg snarvitlausir saman. Hannes Aron aðdáandi Arnars Inga sem leiðist það ekki og er fullur af sýndarmennsku. Vonandi rennur hamagangurinn af þeim þegar þeir eru búnir að umgangast í smá tíma.

Gúllassúpa og brauð í kvöldmatinn og ís, jarðarber og vanillusósa í eftirrétt.

Friday, 20 June 2008

Komin á leiðarenda

Anna María, Árni og Hannes Aron komin til okkar.

Sjúkrasaga framhald...

Þeir sem lásu sjúkrasögu hjá mér frá því í Minneapolis vita að ég fékk streptokokkasýkingu í hálsinn þar.

Eftir að ég kom svo aftur til Svíþjóðar þá er ég búin að vera þreytt og löt og kenndi slæmu mataræði þar um (hefur nú áhrif á slenið hjá mér). Fyrir tveimur vikum var mér aftur illt í hálsinum og alltaf þessi þreyta í mér. Ég var nú ekki líkt eins slæm og þegar ég var í USA.
Mamma var hérna hjá okkur og sagði mér að láta kíkja á hálsinn á mér.

Jæja, ég fór til læknis föstudaginn fyrir viku síðan. Hann kíkti á hálsinn og svo var tekið sýni og ég fékk stungu í puttann til að athuga eitthvað í blóðinu. Sýnið var neikvætt, alveg eins og í USA.

Í fyrradag (miðv.dag) hringdi svo læknirinn í mig og sagði að sýnið hefði verið að koma úr ræktun og ég væri með streptokokkasýkingu! Ömurlegt! Ég er sem sagt komin á pensilín aftur.
Vona bara að nú nái ég helv.... sýkingunni úr hálsinum á mér.
Get kannski kennt mér eitthvað um þetta því að ég slakaði ekkert á úti í USA né eftir að ég kom heim aftur, nóg að gera, gestagangur og fleira. Ætla að taka því nokkuð rólega núna.

Anna María, Árni og Hannes Aron koma í kvöld og ég hlakka svo til. Þau ætla að koma með fisk og SS pylsur. Það eru ágætis pylsur hérna nema það að skinnið utan á þeim er svo þykkt að maður borðar hálfpartinn innan úr pylsunni og það er ekki þægilegt að borða það svoleiðis. Sem sagt SS pylsur á leiðinni til okkar!

Núna er midsommar í Svíþjóð og allir í fríi og mjög margt lokað. Þetta er held ég stærsta ferðahelgin og er svipuð og verslunarmannahelgin á Íslandi.

Góða helgi og hafið það gott!

Tuesday, 17 June 2008

17. Júní í IKEA

Fórum í IKEA að versla örlítið og héldum upp á þjóðhátíðardaginn með pylsu og ís.

17.júní

Til hamingju með þjóðhátíðardaginn íslendingar!

Hulda, Þórir og Þorri Steinn fóru í morgun og ferð þeirra var heitið til Gautaborgar. Þórir er að skoða sig um á sjúkrahúsum Svíþjóðar vegna framhaldsnáms og er núna búinn að skoða Lund og svo kemur Gautaborg, hann ætlar einnig að kíkja á Stokkhólm og Uppsala. En það er meira en Svíþjóð sem kemur til greina hjá Þóri því að hann fer í haust til USA að kíkja þar og einnig að skoða sjúkrahús í Noregi.
Það er búið að vera svakalega gaman að hafa þau í heimsókn og ekki yrði það verra ef þau flyttu til Lundar haustið 2009.

Ég fór í þriðja golftímann minn í morgun og mér fer bara ekkert fram! En ég hef heldur ekkert æft á milli golfkennslunnar og Helgi ætlar nú að koma með mér að slá úr fötu á morgun og vonandi náum við að fara líka á fimmtudaginn.

Anna María, Árni og Hannes Aron koma svo í heimsókn á föstudaginn, mikið hlakka ég til að hitta þau. Við förum svo öll saman í Legoland 26.júní.

Núna er bara sængurfataþvottur og svo gestaherbergið gert tilbúið fyrir næsta hóp. Hafið það gott í dag og skemmtið ykkur vel í skrúðgöngu á Íslandi!

Monday, 16 June 2008

Dagbók barnsins

Ég stal þessum texta af bloggsíðu, finnst þetta alveg magnað. Dagbók barnsins frá því í gamla daga. Þessi kafli heiti "Eldi ungbarna" Þetta hefur nú breyst örlítið! Smá pælingar þegar Þorri Steinn er hérna hjá okkur og er að prófa sig áfram með mataræðið. Hann er 6 mánaða í dag!


Þegar móðir og barn hafa hvílzt vel eftir fæðinguna (eftir 7-12 klts) er barnið lagt á brjóstið í fyrsta sinn""Á meðan mjólkin er af skornum skammti, er barnið láitð sjúga 6-7 sinnum á sólahring á 3ja klst fresti.

En jafnan á móðurinni að vera tryggð 7-8 klst. óslitin hvíld að nóttunni"

"Jafnskjótt og mjólkin er orðin næg, er máltíðum fækkað niður í 6 á sólarhring og þær látnar fara eftir fastri reglu., t.d þannig: kl 6, 10 ,14 ,18 og 22. Á nóttunni á barnið alls ekki að sjúga."

Ungbörn eiga að vera á brjósti ekki skemur en 6 mánuði og ekki lengur en 9 mánuði"

"Úr því að barnið er orðið 1 - 2 ja mánaða, er betra að venja það á lítils háttar spónamat með brjóstamjólkinni"

"Þessi máltíð á að vera skyr hrært í vatni, gulrófnastappa, ávaxtamauk eða grænmetisseyði"

"Munið, að það er barninu óhollt að vera lengur á brjósti en 9 mánuði"

"Þegar barnið er hálfsmánaðar er réttar að fara gefa því ávaxtasafa, t.d sítrónu - appelsínu-, krækiberja-, bláberja-, ribsberja-, sólberja- eða tómötusafa."

"Þegar barnið er mánaðargamalt er rétta að fara gefa því skyr"

"Úr því að barnið er 3ja mánaða, má ein máltið þess vera kartöflu- eða gulrófnastappa"

"Þegar barnið er 4ra mánaða má geaf því einu sinni til tvisvar í viku ný hrogn og eins harðsoðna eggjarauðu"

"þegar barnið er 5 mánaða á það að fá 4 máltíðir á dag"

Saturday, 14 June 2008

Á röltinu í miðbænum

Hulda, Þórir og Þorri Steinn

Morgunstund við morgunverðarborðið. Fjölskyldan mætti kl. 11 í gærkvöldi. Sátum og spjölluðum og höfðum gaman.

Friday, 13 June 2008

Orri og Gerður

Gaman, gaman. Orri, Gerður og Dóra Fríða voru á ferðinni frá Jótlandi og kíktu á okkur í heimsókn og ætla að gista. Þau verða bara sett í herbergið hans Arnars Inga og dýnum raðað þar á gólfið því að Hulda og Þórir voru búin að bóka gestaherbergið og eru núna á leiðinni til okkar. Þetta reddast allt saman. Passaði akkúrat dýnufjöldi og sængurfjöldi. Alltaf gaman að fá gesti.

Föstudagurinn 13

Þá er mamma farin eftir viku heimsókn, alveg ótrúlegt hvað vikan var fljót að líða. Og hvað það var líka gott að hafa mömmu hérna þegar Helgi var í Washington....mér leiddist ekkert og börnin voru svo ánægð.
Rakel fór að hágráta þegar hún var að fara að sofa...mamma hafði verið hjá henni öll kvöldin og sagt henni sögu....hún saknaði svo ömmu sinnar í gærkvöldi, en sem betur fer koma þau pabbi 1.júlí.

Skólaslit hjá Arnari Inga í dag og einhver hátíð í gangi.

Hulda og Þórir koma í kvöld ásamt Þorra Steini litla. Það verður gaman að hitta þau.

Góða helgi öll sömul, hafið það gott!

Wednesday, 11 June 2008

Guðmundur og Ósk

Guðmundur og Ósk eru á ferðalagi í Svíþjóð og kíktu á okkur í heimsókn í dag. Þau er vinafólk mömmu og pabbi frá því úr "forn öld" hahaha!!

Tuesday, 10 June 2008

Þriðjudagur

Þá er Helgi kominn heim frá Washington DC og það er enginn Ameríkuferð á planinu á næstunni ;)
En það er utanlandsferð í kortunum en við ætlum að keyra til Danmerkur í Legoland....það telst nú utanlandsferð þó svo að við förum á okkar bíl....við keyrum yfir í annað land :)

Fór í golfkennslutíma númer 2 í morgun og svo kíktum við mamma aðeins í búðir og svo í smá göngutúr.

Annars ekkert merkilegt að gerast, heitt og gott úti en þó nokkuð rok núna, nánast skýjað í allan dag og ég var bara mjög ánægð með það, alla vega í bili.

Kveðja á klakann.

Sunday, 8 June 2008

Annar í leti

Sama sólarlandaveðrið í dag...líklega um 30°c hiti í sólinni, sem sagt, ekki hægt að sitja úti nema undir sólhlíf.

Vorum úti í garði, krakkarnir að busla í lauginni og eitthvað að leika við vinina. Fórum svo í stuttan göngutúr út á leikvöll og gerðum svona picnic úr því. Tókum með nesti og teppi og sátum á teppinum og jöpluðum á nestinu. Vorum reyndar ekki mjög lengi vegna hita.

Fuglinn kíkti í heimsókn og við vorum með snakkpokann úti á borði. Ég heyrði eitthvað skrjáf og hélt að Rakel væri að fá sér snakk en heyrði svo í henni inni. Kíkti út og þar var fuglskrattinn að reyna að komast í pokann. Tók pokann inn. Á meðan ég fór inn með pokann heyrði ég eitthvað annað hljóð úti og þar var fuglinn kominn og var á sólbekknum mínum að kroppa í Vikuna sem mamma kom með og ég var að lesa.
Passa mig núna að vera ekki með neitt úti. Þegar við vorum að borða kvöldmatinn úti á palli þá var fuglinn að fylgjast með og flaug yfir og settist á þakskeggið hjá okkur, beið bara eftir því að við færum inn til að stela af borðinu....honum varð ekki að ósk sinni!

Saturday, 7 June 2008

Leti

Þessi dagur er búinn að vera sannkallaður letidagur.
Lét renna í litlu sundlaugina fyrir krakkana, vökvaði tréin í garðinum og svo erum við mamma bara búnar að vera úti í garði, undir sólhlíf og lesa og kjafta.

Krakkarnir búnir að sulla í lauginni og fara í heimsókn til vina sinna. Fórum í stuttan göngutúr og krakkarnir hjóluðu út í búð og keyptum okkur snakk!! Vorum komnar í svona saltþörf og okkur fannst snakk bara alveg tilvalið.

Grilluðum svínarif og borðuðum úti. Þegar við vorum að bera diska og annað inn í eldhús þá var ennþá fatið með afgangi af svínarifi eftir úti á borði....var inni í smástund og fór svo út. Sá þá að einn biti af svínarifi lá í blómabeðinu. Ég fór inn og spurði mömmu hvort hún hefði sett svínarif í beðið! Nei! auðvitað ekki! Ég fór út og ætlaði að ná í svínarifið en þá var það horfið! Sá svo undir kráku með svínarifið í kjaftinum. Hún hafði þá gert sér lítið fyrir og farið upp á borð og stolið svínarifinu, misst það en sótt svo aftur....en hún missti það svo í næsta garð og ég veit ekki hvert framhald þessa svínarifs er! Maður verður greinilega að passa að skilja ekki eftir úrið sitt eða sólgleraugun úti án eftirlits, alla vega ef maður vill ekki að það hverfi.

Friday, 6 June 2008

Ströndin

Sótti mömmu út á flugvöll í gærkvöldi....kom með skyr, flatkökur og hangikjöt og smá íslenskt nammi....ótrúlegt hvað hún náði að gera miðað við að hafa 3 tíma til að panta flug, pakka og koma sér út á flugvöll!

Keyrði Helga út á flugvöll í morgun....hann á leið til Washington DC....sem sagt búin að fara tvær ferðir út á Kastrup á hálfum sólarhring.

Við mamma og krakkarnir skelltum okkur svo á ströndina í dag. Það er ekki nema 15 mínútur að keyra að næstu strönd hjá okkur sem er mjög fín. Það var alveg pakkað af fólki enda frídagur í Svíþjóð....þjóðhátíðardagurinn! Vorum komin kl. 13 í dag og fórum ekki þaðan fyrr en kl. 17:30.
Var þá búin að koma krökkunum í skyndisturtu og kíkja aðeins á minigolfið.
Krakkarnir voru allan tímann að búa til sandborg, gerðu götur og árfarvegi og létu vatnið renna meðfram öllu.....þau voru virkilega glöð og ánægð með daginn.

Núna er smá slökun eftir hressandi sturtu fyrir mannskapinn þegar heim var komið....allir hreinir og fínir eftir strandarferðina.

Thursday, 5 June 2008

Heimsóknarsumar

Jæja, þá er mamma bara á leiðinni.....var að spjalla við hana í símann núna kl. 10:00 að íslenskum tíma og auðvitað var talað aðeins um veðrið. Ég sagði henni bara að skella sér því ég ætlaði á ströndina á morgun með krakkana.

Hún hugsaði málið mjög stutt því að pabbi verður að vinna alla helgina og Villi og fjölskylda úti í Tenerife.....hún hefur ekkert betra að gera. Svo er Helgi að fara til Washington í golfferð og kemur aftur á þriðjudag þannig að ég hef bara mjög gaman af að fá félagsskap.

Niðurstaðan er sú að hún kemur í kvöld og ætlar að stoppa fram á fimmtudaginn 12.júní.

Á föstudeginum 13.júní koma svo Hulda, Þórir og Þorri Steinn og stoppa til 17.júní.

Föstudaginn 20.júní koma svo Anna María, Árni og Hannes Aron og þau stoppa til 26.júní og koma svo með okkur í Legoland til 28.júní.

Þriðjudaginn 1.júlí koma svo mamma og pabbi og verða til 13.júlí.

Við förum svo í sumarhús í Danmörku með Möggu og Birni Inga sama dag og verðum til 19.júlí.

Svo er bara ekkert hjá okkur fyrr en matarklúbbur 26.júlí.

Og svo ætla ég að koma til Íslands í húsmæðraorlof 10-15.ágúst. Þá verða börnin byrjuð á frístundaheimilinu og Helgi verður að reyna að vinna eitthvað fyrir útgjöldunum okkar eftir sumarið.

Svo verður skroppið í einhverjar dagsferðir í tívolí, á ströndina og eitthvað um Skán.

Þetta er sem sagt sumarplanið hjá okkur!

Það er svo gaman að fá gesti....verið velkomin í heimsókn...þarf bara að bóka í tíma svo að gestaherbergið verði laust!

Sólar og sumarkveðja héðan frá Lundi......hafið það gott!

Skólaskemmtun

Í gær var skólaskemmtun í skólanum hjá Arnari Inga. Það var búið til nokkurs konar tívolí. Inni á skólalóðinni er pínulítil tjörn (girt af) og þar var búið að setja gerfi fiska og krakkarnir áttu að veiða þá með veiðistöng og hver fiskur var merktur með stigum. Síðan voru stigin talin og skráð á töflu.....gaman að þessu.

Svo var flóamarkaður og hægt var að kaupa bækur og spil. Bekkurinn var búinn að æfa söng og maður gat keypt lag og þá sungu krakkarnir.

Það var stígvélakast, hjólarallý, kökuhjól þar sem maður valdi reit með 4 númerum í og svo var hjólinu snúið og ef pinninn stoppaði á eitthvað af þessum 4 númerum vann maður og mátti velja sér smákökupoka.....krakkarnir unnu bæði!

Það var selt popp og pylsur sem maður grillaði svo sjálfur. Skólinn á vinaskóla í Kína og allur ágóði af þessu tívolí fer þangað.

Þetta var bara mjög skemmtilegt og ekta karnival stemmning í góðu veðri.
Skólaslit verða svo föstudaginn 13.júní.

Wednesday, 4 June 2008

Veðurspá fyrir helgina


Ekki amaleg veðurspáin næstu daga hjá okkur.....kannski of mikið??

Tuesday, 3 June 2008

Golf

Hvað haldið þið? Ég er bara byrjuð í golfkennslu! Ákvað að prófa því að Helgi er að verða forfallinn golffíkill og ég ætla að gefa þessu séns og vonandi fell ég fyrir golfi. Þá höfum við eitthvað sameiginlegt og fínt sport í ellinni :) En það kemur nú bara í ljós hvort þetta eigi við mig...ekki sú þolinmóðasta í heimi!

Helgi og Björn Ingi eru svo duglegir í golfi núna (eru í golfi í þessum skrifuðu orðum) þannig að ég og Magga ákváðum að prófa. Veit nú ekki hvað ég á að segja eftir fyrsta tímann en það er alla vega kostur hérna í Svíþjóð að veðrið er oft svo gott.
Við þurfum svo að taka bæði skriflegt og verklegt próf í golfi til að fá "græna kortið" til að mega spila á völlunum. Þetta eru reglur hér í Svíþjóð svo að einhverjir "vitleysingar" fari ekki bara út á golfvöll án þess að kunna allar reglur og skemma fyrir hinum.

Annars var helgin fín....fórum í fertugsafmæli til Baldurs og það var rosa flott....grill og góður félagsskapur. Emelie barnapían okkar var að passa og auðvitað gekk það bara mjög vel.

Það var sannkallað sólarlandaveður í gær...held að það hafi verið milli 27-30°c hiti í gær og ennþá 20°c kl.11 í gærkvöldi. Krakkarnir busluðu í litlu sundlauginni og ég sat undir sólhlíf því að ekki var hægt að vera í sólinni.

Helgi að fara til Washington DC á föstudaginn í golfferð að hitta verslógengið (pottapartí gengið). Hann kemur svo aftur á þriðjudag....rétt svo að jafna sig eftir flugþreytuna frá Minneapolis ferðinni þegar hann fer aftur ;)

Það er þjóðhátíðardagur svía á föstudag 6.júní og frí í skólum. Það eru ekki nema 2-3 ár síðan þessi dagur varð að frídegi hjá svíunum. Það er held ég ekkert merkilegt að gerast hjá þeim en einn leikskólakennari sagði að kannski myndi eitthvað byrja fljótlega fyrst að þetta væri orðinn frídagur. Ætli ég kíki ekki bara á ströndina með krakkana ef veðurspáin heldur...spáð 25°c hita og logni...úff!