Saturday, 7 June 2008

Leti

Þessi dagur er búinn að vera sannkallaður letidagur.
Lét renna í litlu sundlaugina fyrir krakkana, vökvaði tréin í garðinum og svo erum við mamma bara búnar að vera úti í garði, undir sólhlíf og lesa og kjafta.

Krakkarnir búnir að sulla í lauginni og fara í heimsókn til vina sinna. Fórum í stuttan göngutúr og krakkarnir hjóluðu út í búð og keyptum okkur snakk!! Vorum komnar í svona saltþörf og okkur fannst snakk bara alveg tilvalið.

Grilluðum svínarif og borðuðum úti. Þegar við vorum að bera diska og annað inn í eldhús þá var ennþá fatið með afgangi af svínarifi eftir úti á borði....var inni í smástund og fór svo út. Sá þá að einn biti af svínarifi lá í blómabeðinu. Ég fór inn og spurði mömmu hvort hún hefði sett svínarif í beðið! Nei! auðvitað ekki! Ég fór út og ætlaði að ná í svínarifið en þá var það horfið! Sá svo undir kráku með svínarifið í kjaftinum. Hún hafði þá gert sér lítið fyrir og farið upp á borð og stolið svínarifinu, misst það en sótt svo aftur....en hún missti það svo í næsta garð og ég veit ekki hvert framhald þessa svínarifs er! Maður verður greinilega að passa að skilja ekki eftir úrið sitt eða sólgleraugun úti án eftirlits, alla vega ef maður vill ekki að það hverfi.

2 comments:

Anonymous said...

eins gott að passa dótið sitt!!
kv.Ásdís

Anonymous said...

Þetta hljómar yndislega. Frábært að mamma þín skyldi drífa sig út. Njóti þið ykkar. Passið ykkar bara að brenna ykkur ekki :o)

Kv. Hafdís