Þeir sem lásu sjúkrasögu hjá mér frá því í Minneapolis vita að ég fékk streptokokkasýkingu í hálsinn þar.
Eftir að ég kom svo aftur til Svíþjóðar þá er ég búin að vera þreytt og löt og kenndi slæmu mataræði þar um (hefur nú áhrif á slenið hjá mér). Fyrir tveimur vikum var mér aftur illt í hálsinum og alltaf þessi þreyta í mér. Ég var nú ekki líkt eins slæm og þegar ég var í USA.
Mamma var hérna hjá okkur og sagði mér að láta kíkja á hálsinn á mér.
Jæja, ég fór til læknis föstudaginn fyrir viku síðan. Hann kíkti á hálsinn og svo var tekið sýni og ég fékk stungu í puttann til að athuga eitthvað í blóðinu. Sýnið var neikvætt, alveg eins og í USA.
Í fyrradag (miðv.dag) hringdi svo læknirinn í mig og sagði að sýnið hefði verið að koma úr ræktun og ég væri með streptokokkasýkingu! Ömurlegt! Ég er sem sagt komin á pensilín aftur.
Vona bara að nú nái ég helv.... sýkingunni úr hálsinum á mér.
Get kannski kennt mér eitthvað um þetta því að ég slakaði ekkert á úti í USA né eftir að ég kom heim aftur, nóg að gera, gestagangur og fleira. Ætla að taka því nokkuð rólega núna.
Anna María, Árni og Hannes Aron koma í kvöld og ég hlakka svo til. Þau ætla að koma með fisk og SS pylsur. Það eru ágætis pylsur hérna nema það að skinnið utan á þeim er svo þykkt að maður borðar hálfpartinn innan úr pylsunni og það er ekki þægilegt að borða það svoleiðis. Sem sagt SS pylsur á leiðinni til okkar!
Núna er midsommar í Svíþjóð og allir í fríi og mjög margt lokað. Þetta er held ég stærsta ferðahelgin og er svipuð og verslunarmannahelgin á Íslandi.
Góða helgi og hafið það gott!
Friday, 20 June 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Farðu vel með þig skvís. Það á ekki af þér að ganga í þessu máli. Það er bara komið að því að Anna og co komi. Njótið ykkar og eigið frábærar stundir.
KV. Hafdís
Æ æ farðu nú vel með þig kona og náðu þessu ógeði úr þér...
Fór með Írisi í bíó í gær á Sex in the City, vantaði bara þig með okkur..
Góða skemmtun í Legolandi
Kv Guðrún S
Post a Comment