Jæja, þá er öll rútína að komast í gang. Skólinn kominn á rétt ról og skautar, karate, sund og skátar að byrja.
Ég er að fara í saumaklúbb á föstudagskvöldið og svo er matarboð hjá matarklúbbnum á laugardagskvöldið. Við erum reyndar ekki búin að heyra frá barnapíunni með kvöldið en þetta hlýtur að reddast, við vælum þá bara í eitthvað af íslendingunum hérna og sjáum hvort við getum komið krökkunum á þau.
Örbylgjuofninn okkar bilaði milli jóla og nýárs og er kominn í viðgerð. Það sló öllu út og við þurftum að skipta um öryggi. Mig hefur held ég aldrei langað eins mikið í örbylgjupopp og núna þegar ofninn er bilaður. Og mér finnst ég ekki nota örbylgjuofninn mjög mikið en það kemur nú annað í ljós þegar maður hefur hann ekki...alltaf þarf maður að hita eitthvað eða bræða. Og í staðinn þarf lengri tíma og meira uppvask til að fá sömu niðurstöðu. En fljótlega fáum við ofninn og þá ætla ég að poppa!!
Veit ekki hvað ég verð dugleg að blogga núna, veit svo sem ekki hvort að einhver annar en mamma er að lesa og ég tala nú við hana í síma nokkrum sinnum í viku. Alla vega ef það eru fleiri sem lesa þá eru þeir ekki duglegir að kommenta! Sé til hvað ég geri, kannski held ég áfram en blogga sjaldnar. Over and out!
Tuesday, 13 January 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Sæl Elsa mín,
Allta skoða ég síðuna ykkar og hef gamana af, en ég er ekki nógu duglelg að kvitta en ef þú hættir ekki að blogga verð ég kanski duglegri.
kv,
Anna María
Ég kem við daglega í bloggrúntinum mínum en er ekki alveg nógu dugleg að kvitta, þú verður að halda áfram að blogga kona... Kv Guðrún S
Já, svona verður maður háður tækninni.
Hlakka til að hitta ykkur mæðgurnar í feb.
sk
Post a Comment