Monday, 27 April 2009
Allt gott
Sumarið er virkilega komið hingað og spáin er góð alla vikuna. Búið að vera sól daglega núna í allan apríl en misheitt eða kalt. Síðustu dagana er búið að vera 18-20°c hiti í skugga norðan meginn hjá okkur. Og núna er spáð 20-25°c hita næstu daga.....þetta er alveg æðislegt og við ætlum að njóta þess á meðan við getum.
Við vorum búin að kaupa okkur flugmiða til Íslands í sumar og ætluðum að stoppa í tæpar 3 vikur. Við erum að fá húsið okkar afhent aftur eftir 2ja ára leigu. Planið er að endurnýja og breyta húsinu eitthvað og við ætlum að nota tímann til að hitta smiði og velja það sem þarf að velja.
En svo kom smá breyting hjá okkur. Við fengum boðskort í pósti í brúðkaup Orra og Gerðar og það er haldið 30.maí. Þannig að við vorum ekki lengi að breyta miðanum og komum til Íslands að kvöldi 28.maí. Nú er bara eftir að semja um frí í skólanum fyrir Arnar Inga því að það eru alveg 2 vikur eftir af skólanum þegar við förum til Íslands. Það á ekki að vera neitt mál að fá frí fyrir Rakel því að hún er bara í forskólabekk (skólinn byrjar 7 ára í Svíþjóð). Veit að kennarinn hans Arnars Inga verður ekki hrifinn af þessu fríi en við vonum það besta.
Þannig að við verðum í 5 vikur á Íslandi í sumar.... frá 28.maí til 2.júlí.
Thursday, 16 April 2009
Rútínan
Krakkarnir eru nú reyndar búin að vera frekar þreytt á morgnanna núna, eiga smá erfitt með að fara að sofa snemma á kvöldin. Veðrið er búið að vera svo gott þannig að þau fara alltaf út að leika eftir kvöldmat og vilja ekkert koma inn strax.
Við fórum í afmæli til Ragnars Helga á annan í páskum. Fengum fullt af kökum og öðru góðgæti, namminamm. Gaman að hitta allt fólkið. Páskaeggin á heimilinu auðvitað búin, ekki hægt að geyma svona sælgæti lengi.
Monday, 13 April 2009
Páskar
Påskkäringar....á skírdag er farið sem páskakellingar og bankað á dyrnar hjá fólki og óskað gleðilegra páska og börnin fá eitthvað góðgæti í staðinn.
Páskalærin borðuð ásamt meðlæti.
Páskaeggin fundin eftir leitina á páskadag.
Picknic í góða veðrinu.
Saturday, 11 April 2009
Friday, 10 April 2009
Skrylle
Fórum í bíltúr í dag m.a til Skrylle sem er útivistarsvæði. Veðrið alveg frábært og við tókum með nesti og gengum heilmikið.
Villi tók til hendinni í garðinum og tætti upp í moldinni eða réttara sagt leirnum sem Thujan (hekkið) okkar er gróðursett í. Helgi dreifði svo mold yfir og svo var stráð áburði yfir allt saman og vökvað. Ætlum reyndar að kaupa meiri mold á morgun og setja betur yfir beðið. Svo þarf að bera áburð á grasflötina og er stefnan tekin á það á morgun.
Thursday, 9 April 2009
Rakel og Tóta
Rakel er búin að þrá að kaupa sér "Build a bear" bangsa og við höfðum hugsað okkur að gefa henni svoleiðis í afmælisgjöf því að það er óþarfi að gera börnunum allt strax sem þau vilja. Rakel á ekki afmæli fyrr en í september. Henni fannst nú sárt að þurfa bíða svona lengi en vissi að þess þurfti. En svo uppgötvaði hún að hún ætti sjálf pening! Krakkarnir fá vikupening og eru búin að vera dugleg að safna og svo hafa þau fengið pening í jóla og afmælisgjafir. Þannig að niðurstaðan var sú að Rakel myndi kaupa sér bangsa og smá föt á bangsann fyrir sinn pening og svo fengi hún einhverja fylgihluti í afmælisgjöf (þá verður örugglega þessi ánægja búin og eitthvað annað komið í staðinn). Í gær var svo brunað til Malmö í Build a bear búð og valinn bangsi og föt. Bangsinn er kanína sem var skírð Tóta. Það fylgir fæðingarvottorð með og svo er sett hjarta inn í kanínuna sem Rakel velur og setur í.
Villi og fjölskylda eru sem sagt komin til okkar. Þau komu með okkur til Malmö í gær og eru núna aðeins að kíkja í Nova Lund verslunarmiðstöðina. Um hádegið ætlum við svo með krakkana í Stadsparken og leyfa þeim að leika sér og kíkja á fuglana. Tökum með okkur nesti og teppi í góða veðrinu.
Á morgun ætla þau að leigja bílaleigubíl svo að við getum öll farið í smá ferðalag. Ætlum m.a að fara til Skrylle sem er svona útivistarsvæði með gönguleiðum, leiktækjum og hægt að grilla þar og svoleiðis. Erum eftir finna meira til að skoða hér í kring.
Við Helgi erum að fara í útskriftarveislu í kvöld, auðvitað hjá lækni! Ágætt að nota ættingjana til að passa gríslingana okkar. Allt liðið ætlar bara að borða á McDonalds í kvöld.
Saturday, 4 April 2009
Fyrsti heiti dagur ársins
Frábært veður, sól, logn og 15°C hiti og það er bara 4.apríl! Ágæt spá framundan en kannski ekki alveg svona heitt, en í kringum 10°C. Rakel í afmælisveislu og von á Villa og fjölskyldu á þriðjudaginn. Krakkarnir telja niður daga þangað til Íris Ösp og Finnur Gauti koma.