Fórum í bíltúr í dag m.a til Skrylle sem er útivistarsvæði. Veðrið alveg frábært og við tókum með nesti og gengum heilmikið.
Villi tók til hendinni í garðinum og tætti upp í moldinni eða réttara sagt leirnum sem Thujan (hekkið) okkar er gróðursett í. Helgi dreifði svo mold yfir og svo var stráð áburði yfir allt saman og vökvað. Ætlum reyndar að kaupa meiri mold á morgun og setja betur yfir beðið. Svo þarf að bera áburð á grasflötina og er stefnan tekin á það á morgun.
1 comment:
Það er nú ekki slæmt að fá Villa í garðvinnu hjá sér.
Greinilega frábært veður.
Gleðilega páska
sk
Post a Comment