Thursday, 9 April 2009

Rakel og Tóta

Rakel er búin að þrá að kaupa sér "Build a bear" bangsa og við höfðum hugsað okkur að gefa henni svoleiðis í afmælisgjöf því að það er óþarfi að gera börnunum allt strax sem þau vilja. Rakel á ekki afmæli fyrr en í september. Henni fannst nú sárt að þurfa bíða svona lengi en vissi að þess þurfti. En svo uppgötvaði hún að hún ætti sjálf pening! Krakkarnir fá vikupening og eru búin að vera dugleg að safna og svo hafa þau fengið pening í jóla og afmælisgjafir. Þannig að niðurstaðan var sú að Rakel myndi kaupa sér bangsa og smá föt á bangsann fyrir sinn pening og svo fengi hún einhverja fylgihluti í afmælisgjöf (þá verður örugglega þessi ánægja búin og eitthvað annað komið í staðinn). Í gær var svo brunað til Malmö í Build a bear búð og valinn bangsi og föt. Bangsinn er kanína sem var skírð Tóta. Það fylgir fæðingarvottorð með og svo er sett hjarta inn í kanínuna sem Rakel velur og setur í.

Villi og fjölskylda eru sem sagt komin til okkar. Þau komu með okkur til Malmö í gær og eru núna aðeins að kíkja í Nova Lund verslunarmiðstöðina. Um hádegið ætlum við svo með krakkana í Stadsparken og leyfa þeim að leika sér og kíkja á fuglana. Tökum með okkur nesti og teppi í góða veðrinu.

Á morgun ætla þau að leigja bílaleigubíl svo að við getum öll farið í smá ferðalag. Ætlum m.a að fara til Skrylle sem er svona útivistarsvæði með gönguleiðum, leiktækjum og hægt að grilla þar og svoleiðis. Erum eftir finna meira til að skoða hér í kring.

Við Helgi erum að fara í útskriftarveislu í kvöld, auðvitað hjá lækni! Ágætt að nota ættingjana til að passa gríslingana okkar. Allt liðið ætlar bara að borða á McDonalds í kvöld.

No comments: