Wednesday, 27 May 2009

Erum á leiðinni....

..... til Íslands á morgun...
Ég er svona að leggja lokahöndina á að pakka í töskurnar. Og nóg að gera við að þvo þvott og setja hreint utan um rúmin og þess háttar stúss.
Sláum grasið í garðinum í dag og svo verður slegið fyrir okkur einu sinni í viku á meðan við erum á Íslandi.

Það verður gaman að koma til Íslands og vera í húsinu okkar. Kannski svolítið tómlegt hús en gott að vera í hverfinu og krakkarnir geta hlaupið yfir til vinanna í heimsókn.
Það verður nóg að gera hjá okkur að hitta iðnaðarmenn í næstu viku og svo þurfum við að fara á heilmikið búðarflakk til að velja gólfefni og eldhústæki í húsið vegna breytinga sem við ætlum að fara í. En þetta verður bara gaman!

Saturday, 23 May 2009


Úti að leika.

Og Helgi líka, úti að leika.

Rakel á uppáhaldsstaðnum sínum og helst alltaf hálfber.

Rakel með andlitmálninguna. Hello Kitty.

Fléttubrauðið sem ég bakaði.


"Grænn" dagur með nágrönnunum.

Krakkarnir á sundnámskeiði.

Matarklúbburinn


Setið við matarborðið og snætt.

Sigga og Siggi.

Björn Ingi, Magga og Helga.

Sunday, 17 May 2009

Eurovision

En hvað það var nú gaman að horfa á eurovision í gærkvöldi, við kusum auðvitað Ísland!

Svo var "grænn dagur" í botnlanganum okkar í dag. Við vorum að tína arfa, klippa tré og gera fínt hjá okkur. Svo var komið með kaffi og bollur og nágrannarnir að spjalla. Það var auðvitað talað um eurovision og við Helgi gátum verið mjög montin með okkur!

Hanna vinkona Rakelar hringdi í hana kl. 10 í morgun og bauð henni í heimsókn. Hún var í allan dag þar og borðaði kvöldmat og kom svo heim. Svona eru börnin manns orðin stór, bara burtu allan daginn hjá vinunum.

Saturday, 16 May 2009

Helgin

Helgi kom heim frá Stokkhólmi í gær. Næturlestin var víst algjör hryllingur! Hann lenti í klefa með karli sem hraut svo svakalega háum kæfisvefni þannig að Helgi svaf ekkert og var dauðfeginn að komast út úr lestinni.

Svo er Helgi búinn að taka 18 holur í golfi í morgun með Birni Inga og Val.
Ég er búin að baka fléttubrauð með sesamfræjum og það var svakalega gott.

Ég hjólaði með krakkana á McDonalds því að þar var andlitsmálun í boði. Rakel vildi fá andlitsmálun og fékk "Hello Kitty" andlit. Hún er algjört krútt. Svo hjóluðum við í hverfisbúðina og keyptum laugardagsnammið.

Við ætlum að horfa á eurovision í kvöld eins og flestir aðrir held ég. Við getum alla vega kosið Ísland úr okkar sænska símanúmeri og svo getum við kosið Svíþjóð úr okkar íslenska símanúmeri, er nú samt ekki viss um að ég kjósi Svíþjóð en kýs alla vega Ísland.

Eins og ég hef áður sagt þá komum við til Íslands 28.maí og ætluðum að vera til 2.júlí. En í gær fékk ég e-mail frá Iceland Express og þá er búið að fella niður seinnipartsflugið þann 2.júlí. Við nennum ekki að taka vél kl.7 um morguninn ef við þurfum þess ekki. Þannig að við þurftum að breyta um flug. Það er flogið á þriðjudögum og sunnudögum seinnipartinn og við ákváðum að taka þriðjudagsflugið þann 30.júní í staðinn. En ef að við skiptum um skoðun þá getum við breytt fluginu fram til 15.júní en eftir það þyrftum við að borga breytingargjald. En þetta er svo sem allt í lagi, við erum þegar búin að lengja ferðina okkar um 2 vikur með því að koma fyrr til Íslands og ég held að það dugi nú alveg að stoppa í mánuð á Íslandi og þetta eru ekki nema 2 dögum styttri ferð.

Það verður reyndar nóg að gera hjá okkur þennan mánuðinn því að við erum að undirbúa breytingar á húsinu okkar og þurfum að hitta ýmsa iðnaðarmenn, kíkja á gólfefni og loftplötur og þess háttar þvæling. Svo ætlum við að reyna að halda smá partý fyrir vinina og einnig á Arnar Ingi afmæli í júní og þá verður haldið afmæli. Svo viljum við kíkja á sumarhúsið hans Ágústar afa í Múlakoti, höfum bara séð það á myndum og erum mjög spennt að fá að kíkja á það. Svo má nú ekki gleyma aðalmálinu með það að við flýttum komu okkar....brúðkaupið hjá Orra og Gerði þann 30.maí!

Arnar Ingi á bara eftir einn tíma í píanó áður en sumarfríið byrjar þar. Kennarinn er mjög ánægð með hann og finnst hann hafa komist langt á stuttum tíma. Þá er bara að láta hann æfa sig í sumar á píanóið og halda þessu við. Það er fínt að Ágúst afi á píanó sem Arnar Ingi getur æft sig á meðan á Íslandsdvölinni stendur. Píanóið þarf reyndar stillingu en hann getur alla vega æft nóturnar þó svo þær verði smá falskar, ekki nema afi láti stilla píanóið ;-)

Hafið góða helgi!

Sunday, 10 May 2009

Slappleiki

Rakel litla var með hálsbólgu og kvef í síðustu viku. Fór ekki í skólann á mánudeginum en fór svo restina af vikunni í skólann.

Við fórum ásamt Hönnu vinkonu Rakelar í dýrabúð að kíkja á hamstra. Við ætlum að leyfa krökkunum að fá hamstra í haust og Rakel vildi endilega fara að "kíkja" á hamstrana þó svo við segðum að þetta yrðu ekki sömu hamstrarnir og yrðu til í haust. En það var farinn leiðangur og kíkt á hamstra.

Á fimmtudagskvöldið byrjaði ég að fá illt í hálsinn og verða slöpp. Föstudagurinn var svo notaður í hvíld og rólegheit því að við vorum með matarboð á laugardagskvöldið. Ég var nú samt slöpp á laugardaginn en matarboðið heppnaðist mjög vel og það var gaman. Er öll að skána í dag í hálsinum en þarf að snýta mér reglulega og hnerra svona inn á milli. Þarf að taka því rólega og ætla ekki í ræktina á morgun, fór þá síðast á fimmtudaginn og fæ strax samviskubit yfir að komast ekki svona marga daga í ræktina en borða samt svona mikið. En vonandi gengur það að fara á þriðjudaginn, kemur í ljós.

Helgi er að fara til Stokkhólms í kvöld og ætlar að taka næturlestina. Þá fær hann svefnvagn og þegar lestin stoppar í Stokkhólmi fá farþegarnir að sofa til kl.7:00. Það er fínt,vaknar þá og fer á kaffihús og fær sér morgunverð og svo í vinnuna á fund. Hann kemur svo á föstudaginn aftur.

Ólöf Björk frænka sem er 14.ára er svo góð í fótbolta að hún var valin til að fara í knattspyrnubúðir hjá KSÍ með landsliðsþjálfurum á Laugavatni í sumar. Það er ein sem er valin úr hópnum sem er fædd 1995 úr Fjölni. Þetta gefur möguleika á landsliðinu eftir 2 ár fyrir hana. Frábær árangur!

Saturday, 2 May 2009

Brúðkaupsafmæli

Við Helgi áttum 5 ára brúðkaupsafmæli í gær og kynntumst fyrir 11 árum. Já, tíminn líður alveg ótrúlega hratt.

Í fyrsta skipti í gær þá fórum við ekki út að borða, held að við höfum farið út að borða 1.maí öll þessi ár. En svona er að búa í útlöndum, maður reddar ekki pössun svo auðveldlega. Reyndar í fyrra var mamma og Hulda mágkona hérna og við Helgi fórum til Stokkhólms og höfðum það rosalega gott þar meðan þær voru að kljást við gríslingana okkar!

En það var nú samt heilmikil átveisla í gangi hjá okkur í gær. Veðrið var alveg frábært og í hádeginu grilluðum við pylsur og borðuðum úti á palli. Fengum okkur svo súkkulaðibúðing með rjóma sem ég hafði útbúið.
Í kaffinu bakaði ég svo skonsur og við gæddum okkur á þeim. Og auðvitað var nartað í kex og sælgæti yfir daginn líka :(
Í kvöldmatinn grillaði Helgi svínakjöt á spjóti og við vorum með ofnsteiktar kartöflur með og sósu....nammi namm.
En dagurinn var rólegur í heild sinni, setið úti í garði og lesið, Helgi að grafa upp fífla af grasinu og svo voru krakkarnir að leika við vini sína. Höfðum það alveg stórfínt.

Helgi er svo farinn í golf núna með Birni Inga, reyndar fyrsta golfið hans Helga þetta árið en Björn Ingi er nú búinn að fara nokkrum sinnum og byrjaði strax um páskana.

Nóg að gera í næstu viku...foreldraviðtal hjá Arnari Inga og foreldraviðtal hjá Rakel. Fara svo með Rakel til tannlæknis og svo auðvitað fastir liðir eins og venjulega, sundnámskeið með börnin, píanó með Arnari Inga og skátar hjá Arnari Inga.