Helgi kom heim frá Stokkhólmi í gær. Næturlestin var víst algjör hryllingur! Hann lenti í klefa með karli sem hraut svo svakalega háum kæfisvefni þannig að Helgi svaf ekkert og var dauðfeginn að komast út úr lestinni.
Svo er Helgi búinn að taka 18 holur í golfi í morgun með Birni Inga og Val.
Ég er búin að baka fléttubrauð með sesamfræjum og það var svakalega gott.
Ég hjólaði með krakkana á McDonalds því að þar var andlitsmálun í boði. Rakel vildi fá andlitsmálun og fékk "Hello Kitty" andlit. Hún er algjört krútt. Svo hjóluðum við í hverfisbúðina og keyptum laugardagsnammið.
Við ætlum að horfa á eurovision í kvöld eins og flestir aðrir held ég. Við getum alla vega kosið Ísland úr okkar sænska símanúmeri og svo getum við kosið Svíþjóð úr okkar íslenska símanúmeri, er nú samt ekki viss um að ég kjósi Svíþjóð en kýs alla vega Ísland.
Eins og ég hef áður sagt þá komum við til Íslands 28.maí og ætluðum að vera til 2.júlí. En í gær fékk ég e-mail frá Iceland Express og þá er búið að fella niður seinnipartsflugið þann 2.júlí. Við nennum ekki að taka vél kl.7 um morguninn ef við þurfum þess ekki. Þannig að við þurftum að breyta um flug. Það er flogið á þriðjudögum og sunnudögum seinnipartinn og við ákváðum að taka þriðjudagsflugið þann 30.júní í staðinn. En ef að við skiptum um skoðun þá getum við breytt fluginu fram til 15.júní en eftir það þyrftum við að borga breytingargjald. En þetta er svo sem allt í lagi, við erum þegar búin að lengja ferðina okkar um 2 vikur með því að koma fyrr til Íslands og ég held að það dugi nú alveg að stoppa í mánuð á Íslandi og þetta eru ekki nema 2 dögum styttri ferð.
Það verður reyndar nóg að gera hjá okkur þennan mánuðinn því að við erum að undirbúa breytingar á húsinu okkar og þurfum að hitta ýmsa iðnaðarmenn, kíkja á gólfefni og loftplötur og þess háttar þvæling. Svo ætlum við að reyna að halda smá partý fyrir vinina og einnig á Arnar Ingi afmæli í júní og þá verður haldið afmæli. Svo viljum við kíkja á sumarhúsið hans Ágústar afa í Múlakoti, höfum bara séð það á myndum og erum mjög spennt að fá að kíkja á það. Svo má nú ekki gleyma aðalmálinu með það að við flýttum komu okkar....brúðkaupið hjá Orra og Gerði þann 30.maí!
Arnar Ingi á bara eftir einn tíma í píanó áður en sumarfríið byrjar þar. Kennarinn er mjög ánægð með hann og finnst hann hafa komist langt á stuttum tíma. Þá er bara að láta hann æfa sig í sumar á píanóið og halda þessu við. Það er fínt að Ágúst afi á píanó sem Arnar Ingi getur æft sig á meðan á Íslandsdvölinni stendur. Píanóið þarf reyndar stillingu en hann getur alla vega æft nóturnar þó svo þær verði smá falskar, ekki nema afi láti stilla píanóið ;-)
Hafið góða helgi!
Saturday, 16 May 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Engin mynd af Rakel með andlitsmálninguna?
Post a Comment