Sunday, 10 May 2009

Slappleiki

Rakel litla var með hálsbólgu og kvef í síðustu viku. Fór ekki í skólann á mánudeginum en fór svo restina af vikunni í skólann.

Við fórum ásamt Hönnu vinkonu Rakelar í dýrabúð að kíkja á hamstra. Við ætlum að leyfa krökkunum að fá hamstra í haust og Rakel vildi endilega fara að "kíkja" á hamstrana þó svo við segðum að þetta yrðu ekki sömu hamstrarnir og yrðu til í haust. En það var farinn leiðangur og kíkt á hamstra.

Á fimmtudagskvöldið byrjaði ég að fá illt í hálsinn og verða slöpp. Föstudagurinn var svo notaður í hvíld og rólegheit því að við vorum með matarboð á laugardagskvöldið. Ég var nú samt slöpp á laugardaginn en matarboðið heppnaðist mjög vel og það var gaman. Er öll að skána í dag í hálsinum en þarf að snýta mér reglulega og hnerra svona inn á milli. Þarf að taka því rólega og ætla ekki í ræktina á morgun, fór þá síðast á fimmtudaginn og fæ strax samviskubit yfir að komast ekki svona marga daga í ræktina en borða samt svona mikið. En vonandi gengur það að fara á þriðjudaginn, kemur í ljós.

Helgi er að fara til Stokkhólms í kvöld og ætlar að taka næturlestina. Þá fær hann svefnvagn og þegar lestin stoppar í Stokkhólmi fá farþegarnir að sofa til kl.7:00. Það er fínt,vaknar þá og fer á kaffihús og fær sér morgunverð og svo í vinnuna á fund. Hann kemur svo á föstudaginn aftur.

Ólöf Björk frænka sem er 14.ára er svo góð í fótbolta að hún var valin til að fara í knattspyrnubúðir hjá KSÍ með landsliðsþjálfurum á Laugavatni í sumar. Það er ein sem er valin úr hópnum sem er fædd 1995 úr Fjölni. Þetta gefur möguleika á landsliðinu eftir 2 ár fyrir hana. Frábær árangur!

No comments: