Við Helgi áttum 5 ára brúðkaupsafmæli í gær og kynntumst fyrir 11 árum. Já, tíminn líður alveg ótrúlega hratt.
Í fyrsta skipti í gær þá fórum við ekki út að borða, held að við höfum farið út að borða 1.maí öll þessi ár. En svona er að búa í útlöndum, maður reddar ekki pössun svo auðveldlega. Reyndar í fyrra var mamma og Hulda mágkona hérna og við Helgi fórum til Stokkhólms og höfðum það rosalega gott þar meðan þær voru að kljást við gríslingana okkar!
En það var nú samt heilmikil átveisla í gangi hjá okkur í gær. Veðrið var alveg frábært og í hádeginu grilluðum við pylsur og borðuðum úti á palli. Fengum okkur svo súkkulaðibúðing með rjóma sem ég hafði útbúið.
Í kaffinu bakaði ég svo skonsur og við gæddum okkur á þeim. Og auðvitað var nartað í kex og sælgæti yfir daginn líka :(
Í kvöldmatinn grillaði Helgi svínakjöt á spjóti og við vorum með ofnsteiktar kartöflur með og sósu....nammi namm.
En dagurinn var rólegur í heild sinni, setið úti í garði og lesið, Helgi að grafa upp fífla af grasinu og svo voru krakkarnir að leika við vini sína. Höfðum það alveg stórfínt.
Helgi er svo farinn í golf núna með Birni Inga, reyndar fyrsta golfið hans Helga þetta árið en Björn Ingi er nú búinn að fara nokkrum sinnum og byrjaði strax um páskana.
Nóg að gera í næstu viku...foreldraviðtal hjá Arnari Inga og foreldraviðtal hjá Rakel. Fara svo með Rakel til tannlæknis og svo auðvitað fastir liðir eins og venjulega, sundnámskeið með börnin, píanó með Arnari Inga og skátar hjá Arnari Inga.
Saturday, 2 May 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment