Krakkarnir fóru í bólusetningu númer 2 við svínaflensunni í gær í skólanum. Arnar Ingi er búinn að vera kvefaður og sprautan fór ekkert sérstaklega vel í hann. Hann fékk smá hita eftir fyrri sprautuna. Hann kom fyrr heim úr skólanum í gær, fékk sér smá að borða og fór svo að sofa. Hann svaf í tæpa fjóra klukkutíma, vaknaði 18:30. Samt var hann sofnaður aftur um kl.22:30. Hann er heima í dag.
Rakel kvartaði yfir höfuðverk þegar hún vaknaði og oft hlusta ég ekki á hana því að hún nennir ekki að koma sér í skólann og þá segi ég að hún geti bara komið heim ef hún verður áfram slöpp í skólanum. Það gerist nánast aldrei. En núna ákvað ég að leyfa henni að vera heima vegna sprautunnar, maður veit aldrei. En hún er búin að vera eldhress í dag, fer sko í skólann á morgun.
Við fórum í matarklúbb til Möggu og Björns Inga síðastliðið laugardagskvöld. Hittum allan hópinn og fengum frábæran mat eins og Birni Inga einum er lagið og skemmtilegur félagsskapur. Ekki skemmdi fyrir að íslendingar unni dani í handbolta :-)
Nú styttist í það að Helgi verði fertugur, já eftir 10 daga, 5.febrúar. Við fáum matarklúbbinn í mat á laugardeginum 6.febrúar. Minni og Agnes ætla að koma í hádegismat þann 5.febrúar því þau eru upptekin á laugardeginum. Erum ekki alveg ákveðin hvað við gerum svo um kvöldið 5.febrúar.
Við komum svo til Íslands um miðjan febrúar og þá verður haldið uppá afmælið hans Helga. Fyrst verður það matarboð fyrir fjölskyldur okkar á föstudagskvöldi 19.febrúar og svo á að halda stórveislu með mat á laugardeginum 20.febrúar fyrir góða vini og maka þeirra, kannski rúmlega 20 manns.
Þannig að Helgi fær þrefalda fertugsafmælisveislu! Og það skemmtilega er að áður fyrr sagðist hann ekkert vilja gera á fertugsafmælinu!
Tuesday, 26 January 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment