Eldhúsið okkar í húsinu á Íslandi er nánast tilbúið. Það eru bara smáatriði eftir eins og að fá háf yfir eldavélina, flísaleggja vegginn hjá vaskinum og inni í vinnuskápnum. Einnig vantar ramma utan um nokkrar innstungur. Og svo þegar við flytjum þá setjum við annan ísskáp og frysti sem passa betur inn í eldhúsið í staðinn fyrir þessa gömlu. Einnig þurfum við að finna út úr því hvað við setjum á stóra auða vegginn, málverk eða jafnvel stóra ljósmynd á striga eða eitthvað sem kemur vel út.

Horft inn í eldhúsið frá ganginum.

Á endanum hægra megin er hægt að ganga inn í stofuna.

Nýi bakaraofninn sem er stór, 90cm breiður. Við erum einnig með gamla ofninn á veggeiningunni.

Horft frá glugganum inn að ganginum. Heildarlengdin á eyjunni er ca. 325cm.
No comments:
Post a Comment