Tuesday, 22 June 2010

Labba og labba

Við erum sko búin að labba mikið hérna í New York.  Held bara að við séum búin að skoða það sem við vorum með á dagskrá þ.e Empire State, Frelsisstyttuna, Wall Street, Ground Zero þar sem World Trade Center var fyrir 11.september 2001. Búin að fara í Central Park og Time Square, kíkja í nokkrar búðir en ekki búin að kaupa neitt mikið, jú, keypti þrjár afmælisgjafir....leyndó hvað það er!!

Morgundagurinn verður bara nokkuð rólegur, förum líklega í Central Park og sitjum þar eitthvað og horfum á mannlífið.  Förum út að borða annað kvöld á veitingastað sem heitir Balthazar.

Á miðvikudaginn ætlum við að kíkja til Auðar Héðins og hún ætlar að taka okkur smá rúnt í búð sem ég "þarf" að komast í sem er ekki á Manhattan. Við gistum hjá henni (þessi elska bauð okkur að gista og fara með okkur (eða mér) þennan búðarrúnt).  Svo er bara heimför á fimmtudaginn, tíminn er ótrúlega fljótur að líða. Þessi New York ferð er búin að vera alveg frábær og veðrið mjög heitt, um eða yfir 30°C hiti alla daga.

Krakkarnir eru í góðum höndum hjá mömmu og pabba og búin að vera nokkra daga í Kjósinni í sumarbústað.  Auðvitað eru þau að rífast og slást þar eins og heima hjá sér en ég veit að þau eru búin að skemmta sér mjög vel og held að þau sakni okkar ekkert. Takk fyrir þetta, mamma og pabbi!!

Saturday, 19 June 2010

New York

Þá erum við búin að vera í rúmlega tvo sólarhringa í NY. Búin að labba alveg rosalega mikið.  Fórum að kíkja á Time Square í gær og röltum um Central Park.  Fórum inn í Toys R Us og FAO Schwarz að leita að dóti sem var á óskalistanum fyrir börnin. Fundum það og keyptum afmælisgjöf fyrir Arnar Inga. Erum búin að kíkja í nokkar búðir en bara að rölta í gegn, höfum ekki keypt mikið enda ekki hægt að skoða mikið þegar Helgi er með í för, hann fær bara hjartsláttartruflanir og öndunarerfiðleika í búðum!!!  Það sannaði sig líka áðan þegar ég fór í Victorias Secret og var að máta og skoða að hann var að því kominn að deyja!  En það verður ekki farið meira í búðir held ég, erum svo sem ekki í verslunarferð heldur í skoðunarferð og í fríi.

Við fórum í Empire State building áðan og skoðuðum útsýnið yfir NY.  Þvílíkt flott, rosalega gaman að sjá þetta.  Svo finnst mér við alltaf vera borðandi.  Fórum á stað sem heitir China grill í gærkvöldi, flottur og dýr staður og maturinn var alveg æðislegur. Risastórir skammtar og þjónninn mælti með því að við fengjum okkur sitthvorn forréttinn og svo einn aðalrétt saman. Við gerðum það og vorum alveg að springa, kláruðum ekki einu sinni allan matinn!  Við löbbuðum svo frá veitingastaðnum á hótelið, það er þó nokkur spotti og gengum þá í gegnum Time Square og þar var allt fullt af fólki og ljósaskilti út um allt, mjög gaman að sjá þetta.

En ég get alveg sagt það að maður verður dauðþreyttur að vera á götum New York. Það er svo mikill umferðahávaði og mikið af fólki og við erum nú ekki von því.   En það er skemmtilegt að upplifa þetta allt saman.

Ætlum ekki að fara út að borða í kvöld, borðuðum vel í hádeginu og ætlum bara að fá okkur Subway eða eitthvað álíka í kvöld.  Svo eigum við pantað borð á veitingastað á morgun sem heitir Spice Market og er víst mjög góður og vinsæll í NY.  

Friday, 18 June 2010

Morgunverður

Náðum að halda okkur vakandi til rúmlega níu í gærkvöldi. Vöknuðum svo frekar snemma en fórum ekki framúr fyrr en 6:45 í morgun.

Við erum núna á kaffihúsi rétt hjá hótelinu þar sem við náðum í frítt internet.  Fengum okkur morgunverð þar....lífrænt jógúrt með berjum og músli, bláberjaskonsu og appelsínusafa.  Smá sýndarmennska og þykjast vera holl en óhollustan bíður okkar.  Ætlum að fara í dag að skoða Rockafeller center og labba á Time Square og í Central Park.  Þar er líka risastór Toys R' Us búð þar sem við ætlum að kíkja í.  Rakel er búin að biðja um að fá monsu og Arnar vill Predator leikfang. Við eigum svo pantað borð á veitingastað sem heitir China grill og förum þangað í kvöld.

Svo kemur bara í ljós hvort planið okkar gengur eftir.

Komin!

Þá erum við hjónin komin til New York.  Ferðin gekk mjög vel, örfáir í flugvélinni og við vorum með sætaröð fyrir okkur, enginn fyrir aftan, hliðina né fyrir framan. Við horfðum á tvær bíómyndir á leiðinni og höfðum það bara nokkuð gott miðað við langt flug.  Byrjuðum á að fara á Starbuck's á flugvellinum og ég fékk mér Frappucino með karamellusósu og Helgi fékk sér Cappucino.

 

Hótelið okkar er mjög vel staðsett, á 30th Street, nálægt Empire State Building, Macy' s versluninni og bara fullt af verslunum og veitingastöðum.  Við fórum í smá könnunarleiðangur í kringum hótelið og enduðum svo á að borða á litlum mexikönskum stað. Góður matur en ósköp þreyttur staður. En við vorum orðin svo þreytt sjálf eftir flug og rölt og við fórum og röltum um Macy's.  Vá hvað maður verður þreyttur á öllum mannfjöldanum.  Það er alveg ótrúlega margir á röltinu og hávaðinn á götunum, fullt af fólki, þvílík umferð, flaut og læti.  Gaman að sjá hvað þetta er nú líkt og maður sér í bíómyndunum, troðfullar götur.  Maður þarf nú aðeins að átta sig á stærðinni á byggingunum.  Við erum ekki alveg ákveðin í hvað við gerum á morgun en kíkjum hugsanlega í Empire State eða Rockafeller center og svo verðum við nú að kíkja aðeins í Central Park.

 

Við erum núna komin á hótelið og klukkan er bara átta að kvöldi hérna en komið miðnætti á Íslandi og klukkan orðin tvö í Svíþjóð. Við vorum nú ekki alveg komin inná íslenska tímann eftir tvo daga á Íslandi  og erum  alveg dauðþreytt. En við þurfum að halda okkur vakandi lengur til að reyna að stilla okkur inná tímann hérna í New York.

Monday, 14 June 2010

Erum á leiðinni

 Nú erum á leiðinni til Íslands á eftir.  Við Helgi skiljum svo börnin eftir hjá mömmu og pabba og stingum af til New York á fimmtudaginn.  Spennandi, ég hlakka til. Við verðum í viku og svo í viku á Íslandi.  Förum aftur til Svíþjóðar þann 2.júlí.


Thursday, 3 June 2010


Við Helgi hjóluðum í bæinn og borðuðum saman hádegismat í blíðskaparveðri.

Wednesday, 2 June 2010

Lokadagurinn í skátunum.