Þá erum við hjónin komin til New York. Ferðin gekk mjög vel, örfáir í flugvélinni og við vorum með sætaröð fyrir okkur, enginn fyrir aftan, hliðina né fyrir framan. Við horfðum á tvær bíómyndir á leiðinni og höfðum það bara nokkuð gott miðað við langt flug. Byrjuðum á að fara á Starbuck's á flugvellinum og ég fékk mér Frappucino með karamellusósu og Helgi fékk sér Cappucino.
Hótelið okkar er mjög vel staðsett, á 30th Street, nálægt Empire State Building, Macy' s versluninni og bara fullt af verslunum og veitingastöðum. Við fórum í smá könnunarleiðangur í kringum hótelið og enduðum svo á að borða á litlum mexikönskum stað. Góður matur en ósköp þreyttur staður. En við vorum orðin svo þreytt sjálf eftir flug og rölt og við fórum og röltum um Macy's. Vá hvað maður verður þreyttur á öllum mannfjöldanum. Það er alveg ótrúlega margir á röltinu og hávaðinn á götunum, fullt af fólki, þvílík umferð, flaut og læti. Gaman að sjá hvað þetta er nú líkt og maður sér í bíómyndunum, troðfullar götur. Maður þarf nú aðeins að átta sig á stærðinni á byggingunum. Við erum ekki alveg ákveðin í hvað við gerum á morgun en kíkjum hugsanlega í Empire State eða Rockafeller center og svo verðum við nú að kíkja aðeins í Central Park.
Við erum núna komin á hótelið og klukkan er bara átta að kvöldi hérna en komið miðnætti á Íslandi og klukkan orðin tvö í Svíþjóð. Við vorum nú ekki alveg komin inná íslenska tímann eftir tvo daga á Íslandi og erum alveg dauðþreytt. En við þurfum að halda okkur vakandi lengur til að reyna að stilla okkur inná tímann hérna í New York.
No comments:
Post a Comment