Þá erum við búin að vera í rúmlega tvo sólarhringa í NY. Búin að labba alveg rosalega mikið. Fórum að kíkja á Time Square í gær og röltum um Central Park. Fórum inn í Toys R Us og FAO Schwarz að leita að dóti sem var á óskalistanum fyrir börnin. Fundum það og keyptum afmælisgjöf fyrir Arnar Inga. Erum búin að kíkja í nokkar búðir en bara að rölta í gegn, höfum ekki keypt mikið enda ekki hægt að skoða mikið þegar Helgi er með í för, hann fær bara hjartsláttartruflanir og öndunarerfiðleika í búðum!!! Það sannaði sig líka áðan þegar ég fór í Victorias Secret og var að máta og skoða að hann var að því kominn að deyja! En það verður ekki farið meira í búðir held ég, erum svo sem ekki í verslunarferð heldur í skoðunarferð og í fríi.
Við fórum í Empire State building áðan og skoðuðum útsýnið yfir NY. Þvílíkt flott, rosalega gaman að sjá þetta. Svo finnst mér við alltaf vera borðandi. Fórum á stað sem heitir China grill í gærkvöldi, flottur og dýr staður og maturinn var alveg æðislegur. Risastórir skammtar og þjónninn mælti með því að við fengjum okkur sitthvorn forréttinn og svo einn aðalrétt saman. Við gerðum það og vorum alveg að springa, kláruðum ekki einu sinni allan matinn! Við löbbuðum svo frá veitingastaðnum á hótelið, það er þó nokkur spotti og gengum þá í gegnum Time Square og þar var allt fullt af fólki og ljósaskilti út um allt, mjög gaman að sjá þetta.
En ég get alveg sagt það að maður verður dauðþreyttur að vera á götum New York. Það er svo mikill umferðahávaði og mikið af fólki og við erum nú ekki von því. En það er skemmtilegt að upplifa þetta allt saman.
Ætlum ekki að fara út að borða í kvöld, borðuðum vel í hádeginu og ætlum bara að fá okkur Subway eða eitthvað álíka í kvöld. Svo eigum við pantað borð á veitingastað á morgun sem heitir Spice Market og er víst mjög góður og vinsæll í NY.
No comments:
Post a Comment