Náðum að halda okkur vakandi til rúmlega níu í gærkvöldi. Vöknuðum svo frekar snemma en fórum ekki framúr fyrr en 6:45 í morgun.
Við erum núna á kaffihúsi rétt hjá hótelinu þar sem við náðum í frítt internet. Fengum okkur morgunverð þar....lífrænt jógúrt með berjum og músli, bláberjaskonsu og appelsínusafa. Smá sýndarmennska og þykjast vera holl en óhollustan bíður okkar. Ætlum að fara í dag að skoða Rockafeller center og labba á Time Square og í Central Park. Þar er líka risastór Toys R' Us búð þar sem við ætlum að kíkja í. Rakel er búin að biðja um að fá monsu og Arnar vill Predator leikfang. Við eigum svo pantað borð á veitingastað sem heitir China grill og förum þangað í kvöld.
Svo kemur bara í ljós hvort planið okkar gengur eftir.
No comments:
Post a Comment