Fórum í bæinn og kíktum á Dómkirkjuna í Lundi. Bærinn alveg steindauður því það er midsommar og nánast allt lokað nema eitt og eitt kaffihús opið. Við kíktum á Espresso House og fengum okkur kaffi og köku.
Eldri karlpeningurinn fór svo heim og settist út í garð og drakk bjór! Við Anna María fórum í matvörubúð á meðan að versla inn. Yngri karlpeningurinn (Arnar og Hannes) fór út á leikvöll og hamaðist þar. Þeir eru alveg snarvitlausir saman. Hannes Aron aðdáandi Arnars Inga sem leiðist það ekki og er fullur af sýndarmennsku. Vonandi rennur hamagangurinn af þeim þegar þeir eru búnir að umgangast í smá tíma.
Gúllassúpa og brauð í kvöldmatinn og ís, jarðarber og vanillusósa í eftirrétt.
2 comments:
Hæ hæ ...
Bara að kasta á ykkur kveðju. Er sko að hugsa til ykkar. Er lególandið frammundan ? Það verður sjálfsagt mikið fjör hjá ykkur. Skemmtið ykkur vel ...
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Kv. frúin að Ási
Passaðu þig Elsa að láta þau ekki versla yfir sig :o) Stórhættulegt að fara til útlanda á þessu síðustu og verstu tímum.
Kv. Hafdís
Post a Comment