Hvað haldið þið? Ég er bara byrjuð í golfkennslu! Ákvað að prófa því að Helgi er að verða forfallinn golffíkill og ég ætla að gefa þessu séns og vonandi fell ég fyrir golfi. Þá höfum við eitthvað sameiginlegt og fínt sport í ellinni :) En það kemur nú bara í ljós hvort þetta eigi við mig...ekki sú þolinmóðasta í heimi!
Helgi og Björn Ingi eru svo duglegir í golfi núna (eru í golfi í þessum skrifuðu orðum) þannig að ég og Magga ákváðum að prófa. Veit nú ekki hvað ég á að segja eftir fyrsta tímann en það er alla vega kostur hérna í Svíþjóð að veðrið er oft svo gott.
Við þurfum svo að taka bæði skriflegt og verklegt próf í golfi til að fá "græna kortið" til að mega spila á völlunum. Þetta eru reglur hér í Svíþjóð svo að einhverjir "vitleysingar" fari ekki bara út á golfvöll án þess að kunna allar reglur og skemma fyrir hinum.
Annars var helgin fín....fórum í fertugsafmæli til Baldurs og það var rosa flott....grill og góður félagsskapur. Emelie barnapían okkar var að passa og auðvitað gekk það bara mjög vel.
Það var sannkallað sólarlandaveður í gær...held að það hafi verið milli 27-30°c hiti í gær og ennþá 20°c kl.11 í gærkvöldi. Krakkarnir busluðu í litlu sundlauginni og ég sat undir sólhlíf því að ekki var hægt að vera í sólinni.
Helgi að fara til Washington DC á föstudaginn í golfferð að hitta verslógengið (pottapartí gengið). Hann kemur svo aftur á þriðjudag....rétt svo að jafna sig eftir flugþreytuna frá Minneapolis ferðinni þegar hann fer aftur ;)
Það er þjóðhátíðardagur svía á föstudag 6.júní og frí í skólum. Það eru ekki nema 2-3 ár síðan þessi dagur varð að frídegi hjá svíunum. Það er held ég ekkert merkilegt að gerast hjá þeim en einn leikskólakennari sagði að kannski myndi eitthvað byrja fljótlega fyrst að þetta væri orðinn frídagur. Ætli ég kíki ekki bara á ströndina með krakkana ef veðurspáin heldur...spáð 25°c hita og logni...úff!
Tuesday, 3 June 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Ætla pottþétt að prufa golf einhverntímann, held að ég muni fíla það:)
Hafið það gott í sólinni:) styttist í Spán og sól hjá okkur:)
kv.Ásdís
Líst mér sko á :o) Held að þú eigir alveg eftir að fíla þetta. Allavegana ætla ég að detta í þetta svona þegar að maður hefur tíma og fjárráð. Hef prufað smá og fíla þetta sko alveg.
Kv. Hafdís
Post a Comment