Jæja, þá er mamma bara á leiðinni.....var að spjalla við hana í símann núna kl. 10:00 að íslenskum tíma og auðvitað var talað aðeins um veðrið. Ég sagði henni bara að skella sér því ég ætlaði á ströndina á morgun með krakkana.
Hún hugsaði málið mjög stutt því að pabbi verður að vinna alla helgina og Villi og fjölskylda úti í Tenerife.....hún hefur ekkert betra að gera. Svo er Helgi að fara til Washington í golfferð og kemur aftur á þriðjudag þannig að ég hef bara mjög gaman af að fá félagsskap.
Niðurstaðan er sú að hún kemur í kvöld og ætlar að stoppa fram á fimmtudaginn 12.júní.
Á föstudeginum 13.júní koma svo Hulda, Þórir og Þorri Steinn og stoppa til 17.júní.
Föstudaginn 20.júní koma svo Anna María, Árni og Hannes Aron og þau stoppa til 26.júní og koma svo með okkur í Legoland til 28.júní.
Þriðjudaginn 1.júlí koma svo mamma og pabbi og verða til 13.júlí.
Við förum svo í sumarhús í Danmörku með Möggu og Birni Inga sama dag og verðum til 19.júlí.
Svo er bara ekkert hjá okkur fyrr en matarklúbbur 26.júlí.
Og svo ætla ég að koma til Íslands í húsmæðraorlof 10-15.ágúst. Þá verða börnin byrjuð á frístundaheimilinu og Helgi verður að reyna að vinna eitthvað fyrir útgjöldunum okkar eftir sumarið.
Svo verður skroppið í einhverjar dagsferðir í tívolí, á ströndina og eitthvað um Skán.
Þetta er sem sagt sumarplanið hjá okkur!
Það er svo gaman að fá gesti....verið velkomin í heimsókn...þarf bara að bóka í tíma svo að gestaherbergið verði laust!
Sólar og sumarkveðja héðan frá Lundi......hafið það gott!
Thursday, 5 June 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Vá það er þétt bókað hjá þér:)
Hafðu það gott með mömmu þinni:)
kv.Ásdís
það er brjálað að gera hjá ykkur í súmar, en mikið hlakka ég til að hitta ykkur og við erum farin að telja niður í dag eru 2 vikur og þær líða öruglega mjög hratt þar sem nóg er að gera:)
kv. Anna María
Post a Comment