Friday, 31 October 2008

Í heimsókn í Bjarmó.


Kósý stund, horfa á mynd og borða popp.

Arnar Ingi og Ágúst Karel.

Tinna og Rakel.

Thursday, 30 October 2008

Matarboð í Lækjarfit.


Anna María.

Fórum í matarboð til Önnu Maríu og Árna.


Árni.

María Rós.


Rakel.

Ólöf (m)amma að lesa blöðin.


Arnar Ingi og Týra að leika saman.

Wednesday, 29 October 2008

La Primavera


Helgi á La Primavera.

Elsa á La Primavera.

Skautaferð í Skautahöllina


Rakel komin á skautana.

Hæ hæ!

Glöð systkin á skautum. Arnar Ingi byrjaði með stuðningsgrind en gat svo að lokum sleppt því að skauta með hana.

Monday, 27 October 2008

Matarboð á Bakkastöðum


Íris Ösp, Rakel, Finnur Gauti og Arnar Ingi að gæða sér á pylsum.

Elsa og Ólöf.

Villi og Hulda.


Týra.

Sunday, 26 October 2008

Erum á Íslandi

Erum á Íslandi og búin að vera í 3 daga. Höfum það gott en erum hundleið á krepputali. Kíktum í heimsókn til tengdafólksins á laugardag og þvældumst smávegis.

Borðuðum með vinum á laugardagskvöldið og svo var kaffiboð fyrir fjölskylduna í dag.
Rakel fór heim með Villa og fjölskyldu og ætlar að gista þar í nótt og þvælast eitthvað með þeim á morgun.
Ég fór svo og hitti hluta úr "matar/saumaklúbbnum" í dag og það er alltaf gaman.

Á morgun er svo smá þvælingardagur í að gera ýmsa hluti sem á að ná að gera á Íslandi. Förum svo í mat til Villa og fjölskyldu á morgun.

Planið fyrir vikuna er t.d að Rakel fer að heimsækja Hrafnhildi á þriðjudag og Arnar Ingi fer að heimsækja Magnús. Við Helgi ætlum að fara út að borða á miðvikudagskvöldið og svo förum við í mat til Önnu Maríu og fjölskyldu á fimmtudaginn. Svo er Helgi að vinna í vikunni og ætlar einnig að heimsækja vinnufélaga.

Og takk fyrir afmæliskveðjurnar!

En segi meira frá ferðinni þegar við komum til baka frá Íslandi og set inn myndir.
Hafið það gott, over and out!

Vinkonur


Dóra, Inga og Þórdís


Og svo betri mynd af þeim!

Kaffiboð í Vesturási


Íris Ösp, Arnar Ingi, Rakel og Finnur Gauti.

Eva Dögg, Hulda og Villi.


Ólöf mamma og Sigrún Karls.


Ólöf Björk og Finni pabbi.

Saturday, 25 October 2008

Matarboð í Lálandi hjá Inga og Þóru


Dísa, Arna og Tóti.


Þóra, Ingi, Kjarri og Helgi.

Arna, Tóti, Elsa og Þóra.

Helgi, Arna og þóra.

Fengum okkur næringu á Taco Bell, höfðum ekki smakkað það áður. Og það stóðst væntingar, mjög gott!

Leikið í snjónum, undirbúningur fyrir snjóstríð.

Gaman að leika.

Heimsókn í Bjarmó


Ágúst Karel, Unnur og Ágúst tengdó.


Frænkur, Tinna og Rakel

Ágúst Karel frændi.

Wednesday, 22 October 2008

Og lífið heldur áfram.....

.......þrátt fyrir kreppu á Íslandi.

Fór í saumaklúbb í gærkvöldi og það var bara mjög gaman. Silla búin að fá klúbbablaðið frá Gestgjafanum og var með kræsingar úr því blaði, nammi namm.

Er að fara í blóðprufu á eftir vegna skjaldkirtilsins og það leit allt vel út í hálsinum í ómuninni. Er búin að vera á leiðinni í blóðprufu í 2 vikur en nú er að duga eða drepast....ætla að fara áður en við förum til Íslands.

Við förum svo út að borða á laugardaginn með vinahóp og ætlum að fara á Orange. Veit ekkert um staðinn en hann leit vel út á heimasíðunni svo við ætlum að prófa.
Ætli maður fari ekki að huga að því hvað á að taka með fyrir fjölskylduna til Íslands, maður kemst víst ekki hjá því að pakka fyrir hópinn.
En við komum eftir 2 daga, sjáumst!

Sunday, 19 October 2008

Sunnudagur

Rólegur sunnudagur framundan. Við sváfum nokkuð lengi svona miðað við fjölskyldufólk og það var bara mjög notalegt.
Rakel á leið í afmæli til Murong og við fórum áðan í Nova Lund að kaupa afmælisgjöf.

Í gær fór Arnar Ingi í karate og Rakel á skauta. Svo fór Rakel í afmæli til Gaiu og Tristan kom í heimsókn til Arnars Inga. Ég bakaði muffins og bjó til Rocky road nammi.

Buðum Minna, Agnesi og börnum í mat og það var mjög gaman að hittast og spjalla.

Ný vika framundan og það eru bara fjórir skóladagar hjá krökkunum því þau eru í fríi á föstudaginn og við komum þá til Íslands, eða á maður kannski að kalla það Kreppuland?
Komum sem sagt á föstudaginn og förum svo aftur heim til Lundar á laugardaginn 1.nóvember.

Wednesday, 15 October 2008

Lestarkaos


Þarna var ég, á leiðinni heim frá CPH í lestinni þegar það var tilkynnt að allar lestarferðir milli Malmö og Lundar væru felldar niður vegna rafmagnsleysis á leiðinni. Ég þurfti að taka rútu frá lestarstöðinni í Malmö og troðningurinn var þvílíkur. Rúturnar komu með löngu millibili og það var fróðlegt að sjá hvernig dýrsleg frekja kom upp í fólki til að troða sér inn í rúturnar á undan samborgurum sínum. kv.Helgi.

Monday, 13 October 2008

Haust í Lundi




Saturday, 11 October 2008

Skátaferð

Núna er Arnar Ingi í skátaferð hér í Lundi. Það var lagt af stað með bakpoka og nú á að leita að tröllum og elda eitthvað úti. Svo á að gista í skátaheimilinu í nótt en með tjaldstemmningu því að krakkarnir áttu að koma með tjalddýnu og svefnpoka og svo er frekar kalt í skátaheimilinu því það er svona gamall bóndabær við akrana. Arnar Ingi var nú ekki til í það að sofa þannig að við sækjum hann í kvöld kl.20:00. Ég er svo sem ekkert ósátt við það, veit að ég hefði verið stressuð að láta hann gista í kuldahúsi með ókunnugu fólki og hann fékk algjörlega að ráða því sjálfur hvort að hann gisti eða ekki. En ég er mjög ánægð með að hann vilji vera með í ferðinni.

Skautaæfing

Rakel komin inn á svellið.


Beðið eftir að komast inn á svellið á skautaæfingu.


Thursday, 9 October 2008

Arnar Ingi sestur í klippistólinn og bíður eftir klippingunni.


Rakel á hárgreiðslustofu


Monday, 6 October 2008

Ja hérna

Það er aldeilis ástand á Íslandi....þvílíkar aðgerðir í gangi hjá ríkisstjórninni en samt veit maður ekki mikið hvað þetta þýðir.

Frí í skólanum hjá krökkunum í dag og Addi og Elva Björk kíktu í heimsókn með strákana sína. Þeir skemmtu sér bara þrælvel saman og við heimavinnandi foreldrarnir líka.
Fór svo með Rakel á sundnámskeið og hún er bara að standa sig ágætlega....skemmtir sér alla vega vel í sundinu.

Svo er bara að halda áfram að fylgjast með ástandinu í heiminum og vona að maður komi sæmilega undan þessu. Eigum alla vega tvö hús, eitt á Íslandi og eitt í Svíþjóð.

Sunday, 5 October 2008

Hjálpsöm við heimilisstörfin




Rigningarsunnudagur

Feðgarnir að spila saman tölvuleik....með tölvurnar tengdar í sama leiknum.


Rakel að kúra og horfa á teiknimyndir á rigningarsunnudegi.


Saturday, 4 October 2008

Í Stadsparken

Hanna og Rakel í Stadsparken í Lundi.

Óvænt heimsókn

Hvað haldið þið? Hann Sverrir frændi minn kíkti í heimsókn til okkar í dag! Hann var að koma úr flugi frá Tælandi eldsnemma í morgun og lenti á Kastrup og fer þaðan í kvöld.
Hann á íslenskan vin hérna í Lundi sem er nánast nágranni okkar og kíkti í heimsókn til hans og síðan til okkar. Ég var að stússast í eldhúsinu þegar ég sá einhvern kíkja á gluggann og það var Sverrir! Ótrúlega gaman.

Friday, 3 October 2008

Framundan

Það sem er núna framundan um helgina er að Arnar Ingi fer í karate og á sama tíma er Rakel að byrja á skautanámskeiði sem er í hinum enda bæjarins. Við reddum alla vega fyrsta tímanum þannig að Arnar Ingi fer til Tristans sem er með honum í karate og þeir fara svo samferða í karate. Svo fara þeir aftur heim til Tristans á eftir og leika smávegis.
Með þessu móti getum við bæði fylgt Rakel á fyrstu skautaæfinguna og horft á hana. Svo finnum við bara út góða strætóleið fyrir næstu helgar.

Rakel er svo á leið í afmæli á morgun sem verður haldið í Stadsparken og leikið úti allan tímann.

Frí í skólanum hjá krökkunum á mánudag og þá ætlum við Addi, Elva Björk og ég að hittast með strákana okkar sem eru allir jafngamlir, þeir Óðinn, Tristan og Arnar Ingi. Reyndar fer svo Rakel á sundnámskeið um miðjan dag en það er nógur tími fyrir það að hittast.

Við hjónin erum að reyna að róa okkur eftir fjármálastressið á Íslandi og aðeins búin að leysa eitthvað úr okkar peningamálum þar. Ætlum að hafa stesslausa helgi og njóta haustsins. Í dag er búið að vera 13°c hiti og á að vera milli 10-13°c næstu daga. Komum svo til Íslands í lok mánaðarins og aldrei að vita nema við komum í hörku vetur ef veðrið verður áfram svona á Íslandi. En það yrði bara gaman fyrir okkur!
Góða helgi!