Friday, 3 October 2008

Framundan

Það sem er núna framundan um helgina er að Arnar Ingi fer í karate og á sama tíma er Rakel að byrja á skautanámskeiði sem er í hinum enda bæjarins. Við reddum alla vega fyrsta tímanum þannig að Arnar Ingi fer til Tristans sem er með honum í karate og þeir fara svo samferða í karate. Svo fara þeir aftur heim til Tristans á eftir og leika smávegis.
Með þessu móti getum við bæði fylgt Rakel á fyrstu skautaæfinguna og horft á hana. Svo finnum við bara út góða strætóleið fyrir næstu helgar.

Rakel er svo á leið í afmæli á morgun sem verður haldið í Stadsparken og leikið úti allan tímann.

Frí í skólanum hjá krökkunum á mánudag og þá ætlum við Addi, Elva Björk og ég að hittast með strákana okkar sem eru allir jafngamlir, þeir Óðinn, Tristan og Arnar Ingi. Reyndar fer svo Rakel á sundnámskeið um miðjan dag en það er nógur tími fyrir það að hittast.

Við hjónin erum að reyna að róa okkur eftir fjármálastressið á Íslandi og aðeins búin að leysa eitthvað úr okkar peningamálum þar. Ætlum að hafa stesslausa helgi og njóta haustsins. Í dag er búið að vera 13°c hiti og á að vera milli 10-13°c næstu daga. Komum svo til Íslands í lok mánaðarins og aldrei að vita nema við komum í hörku vetur ef veðrið verður áfram svona á Íslandi. En það yrði bara gaman fyrir okkur!
Góða helgi!

No comments: