Tuesday, 30 September 2008

Allt að verða vitlaust

Já, það er sko þvílíkt ástand í fjármálunum á Íslandi.....bara allt að verða kolvitlaust!
Við stressumst nú líka upp hérna því að við eigum nú eitthvað inn á banka á Íslandi, við vonum bara að það fari enginn banki á hausinn.
Maður finnur nú líka fyrir spennu í fjármálageiranum hérna í Svíþjóð og það er einnig stress í gangi hérna vegna bankanna en ekki líkt því eins og á Íslandi....en allt getur nú breyst á einum degi og við vonum að ástandi hérna endi ekki eins og á klakanum.

Krakkarnir fóru í vettvangsferð með skólanum í gær og komu til baka eins og reykt hangikjöt það var svo sterk reykjarlykt af þeim, það hefur greinilega logað vel í grilli og pylsum í ferðinni.

Ég er að fara í hádegishitting á morgun með íslensku skólafélögunum sem ég var með í sænsku náminu síðasta vetur.

Rakel byrjar á skautanámskeiði á laugardaginn þannig að við þurfum að fara í leiðangur og kaupa skauta á dömuna á morgun.

1 comment:

Anonymous said...

Já mikið ósköp .. maður er farin að forðast að fylgjast of mikið með fréttunum. Maður getur engu breytt ... verður bara að trúa því að hlutirnir fari á þann veg sem að þeir eiga að gera :o)
Kv. frá Ásfjölskyldunni sem er með allt sitt í Glitni ... ótrúlegt en satt þá er ég ekkert of mikið stressuð yfir þessu....