Byrjuðum laugardagsmorguninn á að kíkja í Bjarmaland að hitta tengdó/afa og ömmu.
Arnar Ingi fór svo að heimsækja Magnús vin sinn og þar var einnig Sindri félagi þeirra. Þeir léku sér heillengi saman en í hamagangi milli Magnúsar og Sindra brotnaði úr tönn í Magnúsi. Það var brunað með Magnús til tannlæknis og Arnar Ingi beið inni hjá tannlækninum meðan gert var við tönn Magnúsar. Síðan héldu þeir aftur heim til Magnúsar að leika.
Í dag, sunnudagsmorgun var farið á fjölskyldudag Toyota við Esjuna. Byrjað var á að planta trjám við Esjurætur og svo fært sig aðeins um set á fjölskylduhátíðina.
Það var boðið upp á grillaðar pylsur, gos/svala og prins póló. Einnig var andlitsmálun fyrir krakkana og hoppukastali.
Keppt var í hreysti/fitness þraut og reyndu margir á þol og styrkleika sinn. Farið var í reipitog, pokahopp og keppt í stoppdansi. Í lokin fengu allir krakkar verðlaunapening og skólahreystihúfu.
Svo fórum við Arnar Ingi í bíó og sáum Wall E. Arnar var ánægður með myndina. Fengum lambahrygg og tilheyrandi góðgæti í kvöldmatinn.
Sunday, 7 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment