Við Arnar Ingi erum búin að hafa það aldeilis gott hérna á Íslandi.
Arnar Ingi fór í heimsókn til Atla vinar síns á mánudaginn og þangað kom einnig Atli James vinur þeirra. Svo var okkur boðið í mat til Katrínar og Heklu Maríu og fengum fisk, namm,namm.
Í gær fórum við í svona eftirá afmælisveislu til Hannesar Arons sem varð 6 ára þann 3.september. Anna María var með kræsingar á boðstólnum og Hafdís og Svandís komu líka....gaman að hitta þær allar!
Við Arnar fórum svo í heimsókn til afa í Bjarmó. Tinna frænka átti 6 ára afmæli og við skildum eftir gjöf hjá henni því að hún var ekki heima þegar við komum. Arnar Ingi færði einnig Ágústi Karel og Köru smá pakka líka.
Ég fór svo með Guðrúnu á Ruby Tuesday í gærkvöldi og þar var sko spjallað og borðað.
Erum svo að fara að hitta Elísabetu núna í hádeginu, matarboð hjá Villa og Huldu í kvöld og svo er kaffihúsakvöld með stelpunum úr matarklúbbnum/Árbænum.
Ætla að reyna að finna einhverja glufu til að pakka í tösku því við erum svo að fara heim til Svíþjóðar á morgun....og mamma kemur með okkur!
Wednesday, 10 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment