Tuesday, 23 September 2008

Tannsi

Við hjónin fórum til tannlæknis í dag í árlega skoðun. Reyndar er liðið meira en ár því að við fórum til tannsa áður en við fluttum til Svíþjóðar. En þegar ég lét loksins verða af því að finna tannlækni handa okkur þá þurftum við að bíða í 7 vikur eftir tíma! En það var allt í lagi fyrst að engin var tannpínan! Það var sem sagt allt í þessu fína með tennurnar í okkur.

Í kvöld er svo saumklúbbur hjá mér og það er nú frekar langt síðan ég hitti þann hóp, held að það séu komnir tveir mánuðir. Ég missti nefnilega af þessu fína matarboði um mánaðarmótin sem hópurinn og makar voru með því að ég skrapp til Íslands.

Á laugardaginn er svo matarklúbbur með öðrum íslendingum og það er líka orðið ansi langt síðan hann var því að við höfum verið í útlöndum og á flakki á sitthvorum tímanum í allt sumar. En það er loksins komið að því að hittast aftur....hlakka til!

No comments: