Þá erum við Arnar Ingi komin til Íslands og það gekk allt mjög vel og samkvæmt áætlun Iceland Express. Á tímabili í fluginu var svo mikil ókyrrð í lofti að allir þurftu að spenna öryggisbeltin og flugfreyjurnar þurftu einnig að setjast og spenna beltin. Þetta var frekar óþægilegt....eins og að vera á holóttum malarvegi í bíl.
Pabbi tók á móti okkur í Keflavík og mamma tók á móti okkur í Vesturási með flatkökum með hangikjöti, snúðum og kleinuhringjum. Stuttu seinna komu Villi, Hulda og fjölskylda ásamt nýjasta fjölskyldumeðlimnum, Týru litlu. Já, þau erum komin með lítinn hvolp. Alveg svakalegt krútt og þau erum komin á byrjunarreit, þurfa ala upp lítinn óvita, nei, má ekki! Komdu! Ekki naga þetta! Hahahaha!!! Ég held að ég myndi ekki nenna þessu, en sæt er hún litla krílið.
Við Arnar Ingi erum auðvitað vöknuð langt á undan hinum, við erum enn tengd sænska tímanum. Vorum sem sagt vöknuð rúmlega 6 í morgun, 8 á sænskum tíma.
Ætlum að kíkja í Bjarmaland til tengdaforeldranna svo að Arnar Ingi geti nú hitt ömmu og afa í Bjarmó. Svo fer Arnar Ingi til Magnúsar vinar síns og verður líklega með honum stóran part af deginum, fer jafnvel með þeim til Keflavíkur á ljósanótt en þá bara yfir daginn, ekki kvöldið.
Á morgun er svo Toyotadagurinn og hann verður haldinn við Esjuna, leikir, grill og gaman.
Svo er ýmislegt planað í viðbót, Arnar Ingi fer og hittir Atla vin sinn á mánudag, matarboð hjá Villa og Huldu um kvöldið. Svo ætlum við að reyna að fara í bíó í ferðinni og sjá Wall E.
Einnig förum við í afmæliskaffi til Hannesar Arons og hittum líka Hafdísi og Öddu Steinu þar.
Ég fer og hitti eitthvað af vinkonum mínum og svo erum við nánast bara að fara aftur heim! Þetta er nú ekki langur tími sem við erum hérna.
Saturday, 6 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Velkomin heim. Hlakka til að sjá ykkur Arnar Inga.
Knús til ykkar. Sakna Rakelar en veit hún ætlaði í Tívolí með Pabba sínum. Gaman gaman.
SK
Post a Comment