Arnar Ingi fór í karate á laugardagsmorguninn og hann er sko alveg að "fíla" það. Fórum svo á smá bæjarflakk og krakkarnir keyptu sér dót í Toys r us. Rakel fékk pening í afmælisgjöf og var að kaupa sér gjöf og Arnar átti pening sem hann var búinn að safna.
Emelie barnapía kom svo kl.18:30 og krakkarnir mjög ánægð að sjá hana. Magga og Björn Ingi sóttu okkur Helga og við fórum svo öll í matarboð til Adda og Helgu. Þau voru með íslenskt lambalæri á kolagrilli og þvílíkt gott! Alveg frábær máltíð og frábært kvöld í frábærum félagsskap. Næsti matarklúbbur verður svo í byrjun nóvember eftir að við komum frá Íslandi.
Rakel fór í afmæli til Elinar og Tristan sonur Elvu Bjarkar er í heimsókn hjá Arnari Inga. Tristan er einnig með Arnari Inga í karate og ég kynntist Elvu Björk í sænskunáminu. Kynntist reyndar Adda þar líka og svo kom í ljós að Helga konan hans er úr Árbænum og við þekktum hvor aðra! Og Magga er líka úr Árbænum og þekkti Helgu þannig að stofnaður var þessi skemmtilegi matarklúbbur.
Er að baka köku og ætla bjóða strákunum upp á í drekkutímanum. Hafið það gott!
Sunday, 28 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hæ hæ ...
Hvað er að frétta ? Er komin regla á lífið og tilveruna :o)Bíð spennt eftir að heyra hvernig gengur ...
Kv. Hafdís
Post a Comment