Sunday, 26 October 2008

Erum á Íslandi

Erum á Íslandi og búin að vera í 3 daga. Höfum það gott en erum hundleið á krepputali. Kíktum í heimsókn til tengdafólksins á laugardag og þvældumst smávegis.

Borðuðum með vinum á laugardagskvöldið og svo var kaffiboð fyrir fjölskylduna í dag.
Rakel fór heim með Villa og fjölskyldu og ætlar að gista þar í nótt og þvælast eitthvað með þeim á morgun.
Ég fór svo og hitti hluta úr "matar/saumaklúbbnum" í dag og það er alltaf gaman.

Á morgun er svo smá þvælingardagur í að gera ýmsa hluti sem á að ná að gera á Íslandi. Förum svo í mat til Villa og fjölskyldu á morgun.

Planið fyrir vikuna er t.d að Rakel fer að heimsækja Hrafnhildi á þriðjudag og Arnar Ingi fer að heimsækja Magnús. Við Helgi ætlum að fara út að borða á miðvikudagskvöldið og svo förum við í mat til Önnu Maríu og fjölskyldu á fimmtudaginn. Svo er Helgi að vinna í vikunni og ætlar einnig að heimsækja vinnufélaga.

Og takk fyrir afmæliskveðjurnar!

En segi meira frá ferðinni þegar við komum til baka frá Íslandi og set inn myndir.
Hafið það gott, over and out!

No comments: